Skotar biðja formlega um leyfi til atkvæðagreiðslu Samúel Karl Ólason skrifar 31. mars 2017 13:04 Nicola Sturgeon skrifar bréfið til Theresu May. Vísir/AFP
Heimastjórn Skotlands hefur beðið yfirvöld Bretlands formlega um leyfi til að halda aðra þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði. Nicola Sturgeon, fyrsti ráðherra heimastjórnarinnar, hefur sent Theresu May, forsætisráðherra Bretlands, bréf þar að lútandi. Ástæðan er útganga Bretlands úr Evrópusambandinu. Í bréfinu segir Sturgeon að vegna breyttra aðstæðna verði Skotar að fá tækifæri til að velja eigin framtíð. Samkvæmt heimildum Sky News vill Sturgeon að atkvæðagreiðslan verði haldin innan 18 mánaða. Talið er að May muni hafna þeirri beiðni.May hefur sagt að önnur þjóðaratkvæðagreiðsla sé ekki tímabær að svo stöddu. Skoska þingið samþykkti að fara fram á nýja atkvæðagreiðslu á þriðjudaginn. 69 þingmenn studdu tillöguna en 59 voru á móti henni. Skotar kusu um sjálfstæði árið 2014 en þá kusu 55 prósent Skota að vera áfram í Bretlandi. Á móti kemur að 62 prósent Skota vildu vera áfram í Evrópusambandinu.AFP fréttaveitan segir skoðanakannanir í Skotlandi sýna fram á að stuðningur við sjálfstæði hafi lítið breyst meðal íbúa.
Brexit Mest lesið Biðst afsökunar á „hörmulegu atviki“ Erlent „Þetta er dæmigert baktjaldamakk“ Innlent Undir áhrifum fíkniefna á vinnuvél Innlent Konan trúverðug en maðurinn sýknaður því brotið er fyrnt Innlent Kyrrðarstund í Árbæjarkirkju vegna drengsins sem lést á Ítalíu Innlent Lygileg atburðarás í Landsbankanum Innlent Íslandsvinurinn OG Maco látinn Erlent „Kirsuberið ofan í lygakokteilinn sem hefur verið framreiddur“ Innlent Enginn læknir á vaktinni Innlent Tveggja stafa frost í kortunum og sundlaugar gætu þurft að loka Innlent Fleiri fréttir Biðst afsökunar á „hörmulegu atviki“ Íslandsvinurinn OG Maco látinn Tveir látnir eftir skotbardaga í Noregi „Svarta ekkjan“ fannst látin Tíu ára drengur lést eftir bílslys á Ítalíu Barn meðal látinna í rútuslysi Þýska sambandsþingið leyst upp Fyrrverandi forsætisráðherra Indlands látinn Ákæra líka starfandi forseta til embættismissis Hættulega heitir dagar fleiri og mannskæðari en áður Framkvæmdastjóri WHO staddur á flugvelli í Jemen þegar Ísraelar gerðu árás Rússar vara við því að hrapað sé að ályktunum áður en rannsókn lýkur Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Slóvakar vilja hýsa friðarviðræður Rússlands og Úkraínu Tuttugu ár frá mannskæðustu náttúruhamförum aldarinnar Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Rússneskt olíuflutningaskip í nágrenni sæstrengsins þegar hann rofnaði Stuðningsmenn Assad drápu fjórtán ráðuneytisstarfsmenn Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Sjá meira