Ungir leikmenn fá langfæstu tækifærin í ensku úrvalsdeildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. apríl 2017 14:45 Kylian Mbappe hjá Mónakó er einn mest spennandi knattspyrnutáningur heims í dag. Hér er hann í landsleik með Frökkum á móti Spáni. Vísir/Getty
Það er mikill munur á tækifærum hjá ungum knattspyrnumönnum hvort þeir spila í ensku úrvalsdeildinni eða öðrum af bestu deildum Evrópu. Opta hefur tekið saman leiki hjá knattspyrnumönnum sem hafa ekki haldið upp á tvítugsafmælið sitt og þar sker enska deildin sig mikið út úr. Táningar hafa „bara“ spilað 130 leiki á þessu tímabili en það er minna en helmingur leikja táninga í spænsku deildinni sem er í næstneðsta sæti á þessum fróðlega lista. Franskir táningar fá aftur á móti langflestu tækifærin en táningar í frönsku deildinni hafa þegar spilað 546 leiki á leiktíðinni eða rúmlega fjórum sinnum meira en jafnaldrar þeirra hjá ensku liðunum. Frakkar koma upp með hvern heimklassa knattspyrnumanninn á fætur öðrum þessa dagana og ljóst að þeir eru að gera eitthvað rétt í að ala upp framtíðarfótboltamenn sína. Það að táningarnir fái nóg af tækifærum í frönsku deildinni er án vafa ein af ástæðunum fyrir því. Enska deildin er langneðst á þessum lista og það sem og slakt gengi enska landsliðsins á stórmótum er eitthvað sem Englendingar hljóta að hafa miklar áhyggjur af þessa dagana.Flestir leikir táningar í toppdeildum Evrópu 2016-17: 546 - Franska deildin 284 - Ítalska deildin 284 - Þýska deildin 271 - Spænska deildin 130 - Enska deildinTotal league appearances by teenagers so far in 2016/17:Ligue 1 - 546 Serie A - 284 Bundesliga - 284 La Liga - 271 Premier League - 130— OptaJoe (@OptaJoe) April 7, 2017
Enski boltinn Fótbolti Ítalski boltinn Spænski boltinn Þýski boltinn Mest lesið „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn Handbolti Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Enski boltinn Neitaði að taka í hönd hennar: „Væri til skammar að svindla svona“ Sport Davíð Smári fór illa með gömlu lærisveinana Íslenski boltinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Handbolti Barcelona búið að landa Gordon Enski boltinn Afturelding á flugi, 16 ára hetja Gróttu gegn Þrótti og fyrsti sigur Ægis Íslenski boltinn Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Handbolti Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Unnu sinn fyrsta Evróputitil í kveðjuleik Glasners Fótbolti Fleiri fréttir Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport Sjá meira