Skoðun

Ósvífin aðför ríkisstjórnarinnar að ferðaþjónustunni

Pétur Snæbjörnsson skrifar
Sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar að leggja með einu pennastriki um 20 milljarða skattahækkun á ferðaþjónustuna á ári verður ekki túlkuð öðruvísi en sem hrein aðför að greininni í heild. Þessi áform sýna fyrst og fremst fram á algert skilningsleysi viðkomandi á starfsumhverfi íslenskrar ferðaþjónustu sem stendur í síharðnandi samkeppni á heimsvísu.

Hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustu úr neðra skattþrepi upp í 22,5% er skyndileg risasveifla sem mun hafa neikvæð áhrif á kaup ferðamanna á gistingu, ferðum og þjónustu og þar með á rekstrarmöguleika fyrirtækja í greininni, sérstaklega á landsbyggðinni. Styrking krónunnar hefur ásamt fleiri þáttum þegar valdið því að íslenskir ferðaþjónustuaðilar finna nú þegar fyrir því að erlendar ferðaskrifstofur og aðrir samstarfsaðilar eru farnir að leita á önnur mið. Gistinóttum hefur fækkað og ferðamenn velja frekar styttri ferðir og ódýrari afþreyingu. Þessi hækkun mun ekki hjálpa til að snúa þeirri þróun við.

Mun meira aðkallandi verkefni er að koma böndum á skattaundanskot, sem skiptir bæði ferðaþjónustuna í heild og ríkiskassann miklu máli. Hækkun virðisaukaskatts mun miklu fremur auka undanskot í ferðaþjónustu og það mikið, og þó er því miður allt of mikið um slíkt nú þegar. Fyrir okkur sem lengi höfum barist fyrir því að rekstrarumhverfi ferðaþjónustunnar sé þannig úr garði gert að tækifæri og ástæður til undanskota séu sem fæstar er þessi hækkun stórt stökk í ranga átt.

Samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar rústað

Íslensk ferðaþjónusta er ekki eyland sem er aðeins í samkeppni við sjálfa sig um gjaldeyri þeirra ferðamanna sem komnir eru til landsins. Íslensk ferðaþjónusta er í harðri og mjög virkri samkeppni við aðra áfangastaði í heiminum. Þegar rætt er um samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar hér á landi er átt við það hvernig íslenskri ferðaþjónustu gengur að keppa við önnur lönd um að fá ferðamenn til Íslands.

Í umhverfi þar sem verðmunur upp á fáeina þúsundkalla ræður iðulega úrslitum um val á áfangastað er skyndiákvörðun um tugmilljarða hækkun gjalda á ferðaþjónustuna algerlega glórulaus aðför að samkeppnishæfni greinarinnar og mun án nokkurs vafa hafa mjög neikvæð áhrif á uppbyggingu þjónustu og afkomu ferðaþjónustuaðila um allt land mörg ár fram í tímann.




Skoðun

Sjá meira


×