Saka CIA um tilræði gegn Kim Jong Un Samúel Karl Ólason skrifar 5. maí 2017 10:34 Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu. Vísir/AFP
Öryggismálaráðuneyti Norður-Kóreu sakar bandarísku leyniþjónustuna CIA og leyniþjónustu Suður-Kóreu, IS, um að reynt að ráða Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, af dögum. Þeir segja hið meinta ráðabrugg í raun jafnast á við stríðsyfirlýsingu. Á vef KCNA, opinberrar fréttaveitu Norður-Kóreu, segir að öryggissveitir landsins hafi komið í veg fyrir tilræðið eftir að CIA og IS um að hafa smyglað „hræðilegum hryðjuverkahóp“ inn í landið. Þá kemur fram að til hafi staðið að beita vopni sem samtvinni geislavirkni og eitur. Í yfirlýsingunni segir að „hinir morðóðu djöflar frá IS, í samvinnu við CIA“ hafi spillt ríkisborgara Norður-Kóreu sem heiti Kim, þegar hann starfaði í Rússlandi árið 2014. Þeir hafi látið hann hata forystu landsins. Þessi Kim, sem í yfirlýsingunni er kallaður úrhrak, er svo sagður hafa ætlað að fremja hina meintu árás. Hún mun þó hafa verið stöðvuð en ekkert er tekið fram um hvernig né hvað hafi orðið um Kim. Öryggisráðuneytið segist ætla að elta uppi aðra meðlimi hryðjuverkahópsins og gera út af við þá.
Norður-Kórea Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Sjá meira