Tvísýnt með þingmeirihluta Íhaldsflokksins Kjartan Kjartansson skrifar 8. júní 2017 21:13 Fari kosningarnar eins og útgönguspáin bendir til er um að ræða ósigur fyrir Theresu May, forsætisráðherra. Vísir/EPA Íhaldsflokkurinn nær ekki hreinum meirihluta á breska þinginu ef marka má útgönguspá sem breskir fjölmiðlar birtu þegar kjörstöðum var lokað kl. 21. Verði þetta niðurstaðan þarf að mynda samsteypu- eða minnahlutastjórn á næsta kjörtímabili. Spáin kemur verulega á óvart en skoðanakannanir hafa bent til afgerandi sigurs Íhaldsflokksins. Verði niðurstaðan á þennan veg er talið að um verulegan ósigur fyrir Theresu May, forsætisráðherra og leiðtoga íhaldsmanna, að ræða. Samkvæmt spánni fær Íhaldsflokkurinn flesta þingmenn, 314. Verkamannaflokkurinn fær 266, Skoski þjóðarflokkurinn 34 og Frjálslyndir demókratar 14. Breski sjálfstæðisflokkurinn UKIP fær engan þingmann. Aðeins tólf þingsæti vantar upp á til þess að Íhaldsflokkurinn nái hreinum meirihluta. Ekki er búist við að úrslit kosninganna liggi fyrir fyrr en í nótt.
Íhaldsflokkurinn nær ekki hreinum meirihluta á breska þinginu ef marka má útgönguspá sem breskir fjölmiðlar birtu þegar kjörstöðum var lokað kl. 21. Verði þetta niðurstaðan þarf að mynda samsteypu- eða minnahlutastjórn á næsta kjörtímabili. Spáin kemur verulega á óvart en skoðanakannanir hafa bent til afgerandi sigurs Íhaldsflokksins. Verði niðurstaðan á þennan veg er talið að um verulegan ósigur fyrir Theresu May, forsætisráðherra og leiðtoga íhaldsmanna, að ræða. Samkvæmt spánni fær Íhaldsflokkurinn flesta þingmenn, 314. Verkamannaflokkurinn fær 266, Skoski þjóðarflokkurinn 34 og Frjálslyndir demókratar 14. Breski sjálfstæðisflokkurinn UKIP fær engan þingmann. Aðeins tólf þingsæti vantar upp á til þess að Íhaldsflokkurinn nái hreinum meirihluta. Ekki er búist við að úrslit kosninganna liggi fyrir fyrr en í nótt.
Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Erlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fleiri fréttir Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Sjá meira