Erlent

Fundu auðgað úran í dánar­búi

Kjartan Kjartansson skrifar
Pillur úr auðguðu úrani sem voru notaðar sem eldsneyti í ofna kjarnorkuvera. Talið er að pillan sem fannst í Suður-FInnlandi fyrir tveimur árum hafi komið úr sovésku kjarnorkuveri frá 9. eða 10. áratugnum.
Pillur úr auðguðu úrani sem voru notaðar sem eldsneyti í ofna kjarnorkuvera. Talið er að pillan sem fannst í Suður-FInnlandi fyrir tveimur árum hafi komið úr sovésku kjarnorkuveri frá 9. eða 10. áratugnum. Vísir/Getty

Geislavirkt efni sem fannst í dánarbúi manns í Suður-Finnlandi árið 2024 reyndist vera auðgað úran frá Sovétríkjunum. Lögregla segir óljóst hvernig látni maðurinn eignaðist efnið en það er ekki talið hafa verið bráðhættulegt.

Pilla, fimm sinnum tíu millímetrar, fannst í dánarbúi manns í Asikkala í sunnanverðu Finnlandi árið 2024. Lögregla var kölluð til en ef umbúðirnir utan um pilluna bentu til þess að hún kynni að vera geislavirk, að því er kemur fram í frétt finnska ríkisútvarpsins (YLE). Geilsunarmælir fannst einnig í búinu.

Efnið var sent til rannsóknar í kjarnorkuöryggisrannsóknarstofnun Evrópusambandsins í Þýskalandi. Niðurstaða hennar var að pillan væri úr auðguðu úrani. Hún væri ónotað eldsneyti úr sovéskum kjarnaofni frá níunda eða tíunda áratug síðustu aldar.

Jari Kiiskinen, rannsóknarlögreglumaður, segir YLE að ekki liggi fyrir hvernig látni maðurinn komst yfir úranið. Rannsókn sé lokið þar sem eigandi efnisins sé látinn.

Lögreglan segir að efnið hafi ekki stefnt lífi fólks eða umhverfinu í bráða hættu. Ekki kemur fram í frétt YLE hvort það hafi verið vegna umbúðanna eða af öðrum ástæðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×