Sarah Palin stefnir New York Times vegna ærumeiðinga Kjartan Kjartansson skrifar 28. júní 2017 10:08 Sarah Palin var varaforsetaefni Johns McCain í forsetakosningunum 2008 þegar Barack Obama náði fyrst kjöri. Vísir/AFP
Fyrrverandi varaforsetaefni Repúblikanaflokksins, Sarah Palin, hefur stefnt dagblaðinu New York Times fyrir ærumeiðinga sem telur sig hafa orðið fyrir í leiðara. Í honum var Palin sökuðum um að hafa æst til skotárásar á þingmann demókrata árið 2011. Leiðarahöfundur New York times rifjaði þá árás upp þegar annar byssumaður skaut á þingmenn repúblikana á hafnaboltavelli í Virigníu fyrr í þessum mánuði. Repúblikanar sökuðu þá demókrata og fólk af vinstri vængnum um að hafa stuðlað að árásinni með hatrammri orðræðu gegn sér. Sex manns létust þegar byssumaður skaut Gabrielle Giffords, þáverandi þingkonu demókrata, á pólitískum viðburði í Arizona fyrir sex árum. Þá sökuðu demókratar íhaldsmenn um að hafa lagt jarðveginn fyrir árásina með ofsafenginni orðræðu.Báðust afsökunar á leiðaranumÍ leiðaranum var pólitísk aðgerðanefnd sem studdi Palin bendluð við árásina á Giffords. Aldrei var hins vegar sýnt fram á þau tengsl og birti New York Times leiðréttingu og baðst afsökunar á Twitter í kjölfarið, að því er kemur fram í frétt Huffington Post. Palin er hins vegar ekki tilbúin að fyrirgefa og sakar blaðið um að hafa birt vísvitandi rangar fullyrðingar um að hún hafi hvatt til skotárásar á pólitískum viðburði. Lýsir hún framferði blaðsins sem „ógeðslegu“.We published an editorial last night on the shooting at the G.O.P. men's baseball team practice field in Alexandria. — NYT Opinion (@nytopinion) June 15, 2017We got an important fact wrong, incorrectly linking political incitement and the 2011 shooting of Giffords. No link was ever established. — NYT Opinion (@nytopinion) June 15, 2017
Bandaríkin Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira