Ekki hægt að flytja dauðvona dreng í Páfagarð Kjartan Kjartansson skrifar 5. júlí 2017 18:02 Foreldar Charlie Gard hafa viljað senda hann í tilraunameðferð. Læknar segja hins vegar að hún sé engin lækning heldur geti aðeins dregið úr einkennum. Vísir/Getty
Lagalegar ástæður koma í veg fyrir að hægt sé að flyja Charlie Gard, dauðvona tíu mánaða gamlan dreng, á sjúkrahús Páfagarðs, að sögn Borisar Johnson, utanríkisráðherra Bretlands. Sjúkrahúsið hafði boðist til að taka við drengnum. Mál Charlie Gard hefur vakið mikla athygli. Dómstólar skáru úr um að læknar hans mættu taka hann úr öndunarvél þvert á vilja foreldra hans. Læknarnir segja að drengurinn sé heilaskaðaður, hann sé blindur, heyrnalaus auk þess sem hann getur hvorki kyngt né grátið af völdum mergmisþroska, afar sjaldgæfs sjúkdóms. Sjúkrahús Páfagarðs bauðst í gær til að taka við drengnum og leyfa foreldrum hans að ákveða hvernig meðferð hann fær. Johnson sagði ítölskum starfsbróður sínum hins vegar að það væri ekki hægt af lagalegum ástæðum í dag, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Best væri að sérfræðingar tækju ákvarðanir studdir dómstólum með velferð drengsins í huga.Inngrip páfa og Trump „óhjálpleg og grimmdarleg“Bæði Frans páfi og Donald Trump Bandaríkjaforseti hafa lýst stuðningi við Gard-fjölskylduna undanfarna daga. Robert Winston, breskur erfðasérfræðingur, sagði ITV-sjónvarpsstöðinni að dómstólar og læknar ættu ekki að taka fram fyrir hendur foreldra um örlög barns þeirra. Sagðist hann engu að síður telja inngrip páfa og Trump „ákaflega óhjálpleg og grimmdarleg“. „Þetta barn hefur fengið meðferð á sjúkrahúsi með mikla sérþekkingu í mergmisþroska og nú er verið að bjóða honum tækifæri á sjúkrahúsi sem hefur aldrei birt neinar rannsóknir á sjúkdómnum eftir því sem ég best veit,“ segir Winston.
Tengdar fréttir Mega taka átta mánaða gamlan dreng úr öndunarvél þvert á óskir foreldra Dómstóll í Englandi hefur komist að þeirri niðurstöðu að læknar megi taka átta mánaða gamlan dreng úr öndunarvél, þvert á óskir foreldra hans. 11. apríl 2017 15:04 Sjúkrahús Páfagarðs býðst til að taka við langveiku barni Mál Charlie Gard, langveiks drengs sem bíður dauðans, hefur vakið athygli um allan heim. Barnasjúkrahús í eigu Páfagarðs hefur nú boðist til að taka við drengnum til að foreldrarnir geti sjálfir ákveðið hvenær lífsbarátta hans endar. 4. júlí 2017 18:25 Trump og páfinn heita foreldrum barns sem á að leyfa að deyja stuðningi Foreldrar tíu mánaða gamals langveiks drengs sem læknar ætla að taka úr öndunarvél hafa fengið stuðning frá Páfagarði og Hvíta húsinu. 3. júlí 2017 19:27 Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Þjóð á krossgötum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira
Mega taka átta mánaða gamlan dreng úr öndunarvél þvert á óskir foreldra Dómstóll í Englandi hefur komist að þeirri niðurstöðu að læknar megi taka átta mánaða gamlan dreng úr öndunarvél, þvert á óskir foreldra hans. 11. apríl 2017 15:04
Sjúkrahús Páfagarðs býðst til að taka við langveiku barni Mál Charlie Gard, langveiks drengs sem bíður dauðans, hefur vakið athygli um allan heim. Barnasjúkrahús í eigu Páfagarðs hefur nú boðist til að taka við drengnum til að foreldrarnir geti sjálfir ákveðið hvenær lífsbarátta hans endar. 4. júlí 2017 18:25
Trump og páfinn heita foreldrum barns sem á að leyfa að deyja stuðningi Foreldrar tíu mánaða gamals langveiks drengs sem læknar ætla að taka úr öndunarvél hafa fengið stuðning frá Páfagarði og Hvíta húsinu. 3. júlí 2017 19:27