Sjúkrahús Páfagarðs býðst til að taka við langveiku barni Kjartan Kjartansson skrifar 4. júlí 2017 18:25 Chris og Connie Gard hafa barist fyrir lífi sonar síns Charlie fyrir dómstólum en hafa tapað. Vísir/Getty
Fulltrúar sjúkrahúss í eigu Páfagarðs í Róm hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir bjóða foreldrum breska drengsins Charlie Gard að taka við honum. Til stendur að taka drenginn úr öndunarvél á sjúkrahúsi í Bretlandi. Mál Charlie hefur vakið mikla athygli en hann er tíu mánaða gamall og þjáist af afar sjaldgæfum sjúkdómi. Læknar hans segja að hann hafi orðið fyrir heilaskaða, hann sé blindur og heyrnalaus og geti ekki kyngt eða grátið. Það eina sem haldi í honum lífinu sé öndunarvél. Til stóð að taka hann úr öndunarvélinni á föstudag en því var frestað. Foreldrar Charlie hafa hins vegar ekki viljað taka hann úr öndunarvél þvert á ráðleggingar lækna sem telja áframhaldandi meðferð skaða drenginn. Fóru þau með málið fyrir breska dómstóla en Mannréttindadómstóll Evrópu komst hins vegar að þeirri niðurstöðu í síðustu viku að læknarnir mættu taka Charlie úr öndunarvélina gegn vilja foreldranna.Stuðningur frá páfa og TrumpMariella Enoc, forseti barnaspítala Páfagarðs í Róm, biður nú yfirmenn breska sjúkrahússins að kanna ástand Charlie til að ganga úr skugga um hvort óhætt sé að flytja hann þangað, að því er kemur fram í frétt CNN. Frans páfi hafði áður lýst yfir stuðningi við fjölskylduna og Donald Trump, Bandaríkjaforseti, tísti um að Bandaríkin yrðu glöð að hjálpa Charlie væri það mögulegt. Gard-fjölskyldan hefur viljað senda Charlie í tilraunameðferð til Bandaríkjanna og hefur safnað hátt í tveimur milljónum punda til þess. Læknar segja hins vegar að sú meðferð sé ekki lækning og hún muni aðeins valda drengnum áframhaldandi skaða. Sjúkrahúsið í Róm býður foreldrunum hins vegar að hafa Charlie þar og ákveða sjálfir hvort og hvenær slökt verður á öndunarvélinni.
Tengdar fréttir Mega taka átta mánaða gamlan dreng úr öndunarvél þvert á óskir foreldra Dómstóll í Englandi hefur komist að þeirri niðurstöðu að læknar megi taka átta mánaða gamlan dreng úr öndunarvél, þvert á óskir foreldra hans. 11. apríl 2017 15:04 Trump og páfinn heita foreldrum barns sem á að leyfa að deyja stuðningi Foreldrar tíu mánaða gamals langveiks drengs sem læknar ætla að taka úr öndunarvél hafa fengið stuðning frá Páfagarði og Hvíta húsinu. 3. júlí 2017 19:27 Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Þjóð á krossgötum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira
Mega taka átta mánaða gamlan dreng úr öndunarvél þvert á óskir foreldra Dómstóll í Englandi hefur komist að þeirri niðurstöðu að læknar megi taka átta mánaða gamlan dreng úr öndunarvél, þvert á óskir foreldra hans. 11. apríl 2017 15:04
Trump og páfinn heita foreldrum barns sem á að leyfa að deyja stuðningi Foreldrar tíu mánaða gamals langveiks drengs sem læknar ætla að taka úr öndunarvél hafa fengið stuðning frá Páfagarði og Hvíta húsinu. 3. júlí 2017 19:27