Trump og páfinn heita foreldrum barns sem á að leyfa að deyja stuðningi Kjartan Kjartansson skrifar 3. júlí 2017 19:27 Páfi er sagður fylgjast með máli Charlie Gard af ástúð og sorg. Vísir/AFP
Frans páfi og Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsa stuðningi við foreldra ungs bresks drengs sem til stendur að taka úr öndunarvél. Breskur dómstóll hafði áður heimilað læknum að taka drenginn úr öndunarvélinni þvert á óskir foreldra hans. Charlie Gard er tíu mánaða gamall og þjáist af sjaldgæfum og banvænum sjúkdómi sem nefnist mergmisþroski. Hann er með heilaskaða, er blindur heyrnalaus og getur hvorki kyngt né grátið. Hann dregur aðeins fram lífið með öndunarvél. Foreldrar hans hafa barist fyrir því að koma honum í tilraunameðferð í Bandaríkjunum en dómari heimilaði læknum hans hins vegar að hefja líknandi meðferð. Taldi hann að það væri Charlie ekki fyrir bestu að senda hann í tilraunameðferðina.Hvíta húsið segir að Trump hafi ekki rætt við Gard-fjölskylduna. Hann sé aðeins að reyna að sýna hjálpsemi.Vísir/AFPEngin lækning til Frans páfi sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem hann hvatti til þess að foreldrar Charlie fengju að vera með og líkna honum allt til enda. Trump tísti svo um drenginn í dag og sagði Bandaríkjamenn glaða vilja hjálpa ef það sé hægt. Til stóð að taka Charlie úr öndunarvél á föstudag en breska ríkisútvarpið BBC segir að Great Ormond Street-sjúkrahúsið hafi ákveðið að halda meðferðinni áfram til að gefa foreldrunum lengri tíma. Tilraunameðferðin sem foreldrarnir vilja koma Charlie í er hins vegar ekki lækning enda er engin slík til. Hún er aðeins talin geta dregið úr áhrifum sjúkdómsins. Fram að þessu hefur enginn sjúklingur sem hefur undirgengist meðferðina verið eins langt leiddur og Charlie. Mannréttindadómstóll Evrópu hafnaði kæru foreldranna í síðustu viku. Töldu dómararnir að áframhaldandi meðferð myndi skaða Charlie verulega.
Tengdar fréttir Mega taka átta mánaða gamlan dreng úr öndunarvél þvert á óskir foreldra Dómstóll í Englandi hefur komist að þeirri niðurstöðu að læknar megi taka átta mánaða gamlan dreng úr öndunarvél, þvert á óskir foreldra hans. 11. apríl 2017 15:04 Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira
Mega taka átta mánaða gamlan dreng úr öndunarvél þvert á óskir foreldra Dómstóll í Englandi hefur komist að þeirri niðurstöðu að læknar megi taka átta mánaða gamlan dreng úr öndunarvél, þvert á óskir foreldra hans. 11. apríl 2017 15:04