Sænska stjórnarandstaðan krefst afsagnar ráðherra Kjartan Kjartansson skrifar 26. júlí 2017 13:11 Stefan Löfven á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir. Vísir/AFP
Líklegt er talið að sænska þingið munu lýsa yfir vantrausti á þrjá ráðherra í minnihlutastjórn Stefans Löfven forsætisráðherra vegna gagnaöryggishneykslsis. Stjórnarandstaðan hefur lagt fram tillögu að vantrausti. Anna Johansson, innviðaráðherra, Peter Hultqvist, varnarmálaráðherra, og Anders Ygeman, innanríkisráðherra, berjast nú fyrir pólitísku lífi sínu vegna þáttar þeirra í misheppnaðri útvistun tölvukerfis samgöngustofnunar Svíþjóðar árið 2015.Sjá einnig:Hneyksli vegna ríkisleyndarmála skekur sænsku ríkisstjórnina Ríkisstjórnin hefur viðurkennt að útboðsferlinu hafi verið flýtt og lög hafi verið virt að vettugi þegar IBM í Svíþjóð fékk samning um að reka tölvukerfið. Í kjölfarið gátu starfsmenn í Austur-Evrópu komist í viðkvæm gögn sem geymd voru í kerfinu. Meðal annars hefur komið fram að heimilisföng sænskra orrustuflugmanna gætu hafa verið aðgengileg fólki sem ekki hafði öryggisheimild til þess.Atkvæði greidd innan tíu dagaReuters-fréttastofan greinir frá því að bandalag miðhægriflokka í stjórnarandstöðunni hafi lagt fram vantrauststillögu gegn ráðherrunum þremur. Svíþjóðardemókratar hafa sagst ætla að styðja hana. Annie Lööf, formaður Miðflokksins, segir augljóst að ráðherrarnir hafi vanrækt skyldur sínar til að verja öryggi landsins. Sænska þingið er í sumarfríi en búist er við að þingmenn verði kallaðir saman innan tíu daga til að greiða atkvæði um vantraustið. Jafnvel er talið að efna þurfi til nýrra kosninga verði hún samþykkt. Ríkisstjórn Löfven er mynduð af þingmönnum Sósíaldemókrataflokks hans og Græningja. Minnihlutastjórnin hefur aðeins tæp 40% þingmanna í sænska þinginu.
Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Fleiri fréttir Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Sjá meira