Eggjaskandall beggja vegna Ermarsunds Kjartan Kjartansson skrifar 7. ágúst 2017 19:40 Lítil hætta er á að mönnum verði meint af þó að þeir kæmust í snertingu við menguðu eggin. Vísir/AFP
Matvælastofnun Bretlands kannar nú hvernig egg sem voru menguð skordýraeitri gátu borist þangað til lands. Menguð egg hafa einnig fundist í Frakklandi. Engin hætta er þó talin stafa af menguninni. Í ljós hefur komið að egg frá hollenskum eggjabúum hafi verið menguð með eiturefninu fipronil. Það getur valdið skaða á nýrum, lifur og skjaldkirtli, að því er kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Bresk yfirvöld telja engu að síður að ólíklegt sé að fólki verði meint af eggjunum og Bretum hefur ekki verið ráðið frá neyslu þeirra. Þau telja að um 21.000 eggjum frá býlum þar sem mengunarinnar hefur gætt hafi verið dreift í Bretlandi frá mars til júní.Egg tekin úr sölu í Þýskalandi, Belgíu og HollandiÓttast er að bændur í Hollandi þurfi að slátra milljónum hæna til að losna við mengunina. Um 180 eggjabúum hefur verið lokað þar tímabundið vegna rannsóknar á menguninni. Þýska verslanakeðjan Aldi fjarlægði öll egg úr verslunum sínum í Þýskalandi í síðustu viku vegna hneykslisins. Einnig hafa verslanir í Belgíu og Hollandi gripið til sömu ráðstafana. Embættismenn í Belgíu hafa viðurkennt að þeir hafi vitað af menguninni í eggjum frá hollenskum búum þegar í júní. Fipronil er notað til að drepa mítla og lýs á hænum en ekki er mælt með notkun efnisins á hænur fyrir matvælaframleiðslu vegna eituráhrifa þess.
Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira