Ísland hefur tapað öllum þremur leikjum sínum á EM til þessa og frammistaða íslenska liðsins þykir ekki hafa verið nógu góð.
Einar segir að KKÍ hljóti að skoða stöðu landsliðsþjálfarans Craig Pedersen eftir EM. Hann sér Finn Frey Stefánsson, aðstoðarmann Pedersen og þjálfara Íslands- og bikarmeistara KR, fyrir sér sem framtíðar landsliðsþjálfara. Arnar Björnsson ræddi við Einar í dag.
„Stórkostlegast af öllu er að hafa komist á mótið. Svo sér maður þegar hingað er komið að það vantar mikið. Líkamsburðirnir hjá þessum liðum eru svo miklir,“ sagði Einar og bætti því við að meiðsli Jóns Arnórs Stefánssonar hafi sett stórt strik í reikning íslenska liðsins.

„Við þurfum að fá fleiri atvinnumenn. Við sjáum bara hvað Martin Hermannssyni hefur farið mikið fram í Frakklandi,“ sagði Einar.
Hann er ekkert alltof ánægður með landsliðsþjálfarann á þessu móti.
„Það er auðvitað alltaf auðvelt fyrir svona gamlan þjálfarahund eins og mig að sitja fyrir utan og gagnrýna. Ég veit alveg að hver þjálfari hefur sínar áherslur en ég þekki ekki alveg hans. Ég var mjög sáttur við hann í Berlín en mér finnst sumir hlutir vera einkennilegir núna,“ sagði Einar og bendir á hversu lítið Brynjar Þór Björnsson hefur fengið að spila.
„Þegar heim er komið held ég að KKÍ hljóti að velta við þessum hlutum og athuga hvort það sé komið að leiðarlokum hjá einhverjum. Það hlýtur að vera.“

„Ég sé bara einn mann í því. Það er maður sem hefur náð besta árangri sem nokkurn tímann hefur náðst á Íslandi. Það er auðvitað Finnur sem var með U-20 ára liðið úti. Það eru hreinar línur með það. Hann er okkar framtíðarlandsliðsþjálfari. Hvenær það verður veit ég ekki,“ sagði Einar sem var sjálfur landsliðsþjálfari á sínum tíma.
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.