Jón Arnór um Hauk: Ég veit ekki alveg hvað menn eru að reykja þarna út í heimi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. september 2017 14:45 Haukur Helgi Pálsson á æfingu í dag. Vísir/Ernir
Jón Arnór Stefánsson hrósaði Hauki Helga Pálssyni fyrir frammistöðu sína á móti Grikkjum á Eurobasket í gær en Haukur skoraði 21 stig á eitt sterkasta lið Evrópu. „Haukur var með grúvið. Þú sást það á honum að hann var eins og hann var í Berlín. Hann er frábær og hefur alltaf verið frábær fyrir okkur. Hann er æðislegur leikmaður og ég veit ekki alveg hvað menn eru að reykja þarna út í heimi að hafa ekki samið við hann fyrr," sagði Jón Arnór. Haukur Helgi lék með Rouen í frönsku b-deildinni síðasta vetur en tímabilið á undan var hann með Njarðvík í Domino´s deildinni. Haukur fékk í sumar samning hjá franska úrvalsdeildarliðinu Cholet Basket. „Hann er þroskast sem leikmaður og hefur bætt sig rosalega síðustu þrjú ár, sérstaklega með landsliðinu. Hann er orðinn einn af okkar helstu póstum og þarf að draga vagninn stundum. Hann gerði það frábærlega í dag (í gær) og var mjög flottur,“ sagði Jón Arnór eftir leikinn. Jón vill hinsvegar sjá fleiri í liðinu finna taktinn og skila meiru til liðsins í framhaldinu en næsti leikur er á móti Póllandi á morgun. Fimm leikmenn voru næstsstigahæstir hjá íslenska liðinu á móti Grikkjum og skoruðu þeir allir sjö stig eða fjórtán stigum minna en Haukur. „Það þarf fleiri en Hauk og við þurfum að vera klárir að vinna í okkur sjálfum og gera helling af hlutum,“ sagði Jón Arnór. Leikmennirnir sem skoruðu sjö stig í leiknum við Grikki voru Jón Arnór, Martin Hermannsson, Hlynur Bæringsson, Kristófer Acox og Hörður Axel Vilhálmsson.
EM 2017 í Finnlandi Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Íslenski boltinn Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Körfubolti „Ég sef í bílnum ef ég þarf“ Golf Lést aðeins nokkrum vikum eftir að hann var rekinn úr hópi HM-dómara Fótbolti Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Sjá meira