Vætusöm helgi framundan víða um landið Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 21. september 2017 08:28 Veðrið verður milt næstu daga en mjög vætusamt verður líklega um helgina. Vísir/Stefán
Veðurstofan segir að verðrið verði rysjótt en milt næstu daga og svo verði mjög vætusamt um helgina. Austlæg átt í dag, 5-13 m/s og rigning eða skúrir. Hægari vindur og víða léttskýjað á Norður- og Austurlandi. Hiti 6 til 13 stig. Suðlægari á morgun og víða rigning, þó síst norðaustanlands. Austan og suðaustan hvassviðri eða stormur og talsverð rigning á laugardag, en mikil úrkoma suðaustantil á landinu. Lægir smám saman á sunnudag, en áfram má búast við vætu sunnan- og vestanlands. Mikilli úrkomu er spáð á Suðausturlandi, á Austfjörðum og á Ströndum fram yfir hádegi í dag. Því má búast við vatnavöxtum í ám og lækjum á þessum svæðum, segir Veðurstofan. Mjög mikið rennsli er nú þegar í öllum helsu ám á Suðaustur og Austurlandi og víað mikill vatnselgur. Þannig munaði minnstu að vegurinn fyrir Berufjörð lokaðist alveg síðdegis í gær, en hann hélst þó fær léttum bílum, en stórir bílar urðu að fara um Öxi. Þar hafði ræsi ekki undan vatnsflaumnum en fréttastofu er ekki kunnugt um að vatn hafi nokkurnstaðar rofið vegi í nótt.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ laugardag:Austan og suðaustan hvassviðri eða stormur og talsverð rigning, en mikil úrkoma á Suðausturlandi og Austfjörðum. Hiti 8 til 15 stig. Á sunnudag:Allhvöss sunnanátt með rigningu og síðar skúrum, en léttskýjað norðaustanlands. Fer að lægja síðdegis. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á norðausturlandi. Á mánudag:Suðaustanátt og skúrir sunnantil á landinu, en víða léttskýjað norðan heiða. Hiti 7 til 13 stig. Á þriðjudag og miðvikudag:Suðaustanátt með rigningu og mildu veðri, en að mestu þurrt á Norður- og Norðausturlandi.
Mest lesið Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Innlent Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Innlent Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Innlent „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Innlent Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Innlent Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Innlent „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Innlent Eldhaf í Glasgow Erlent Fleiri fréttir Stóraukin þátttaka kvenna í skimun fyrir krabbameini Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Oddvitinn lætur gott heita í Mosfellsbæ Evrópuhiti, Bjarni Ben og bílastæði Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Þau verða í efstu tíu sætunum á lista Pírata Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Hefur setið tvo af þremur borgarstjórnarfundum frá því að hann skipti um lið Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Bein útsending: ESB-ballið byrjar á Alþingi Niðurrif ónýtra húsa í Grindavík hafið Landbúnaðarstefna ESB henti íslenskum landbúnaði illa Enginn sem hefur stjórn á því hvar olíuverð endar Bjóða upp á tjaldsvæði inni Tekist á um þjóðaratkvæði á þingi í dag og olíuverð í hæstu hæðum Ætlar ekki að taka úrslitunum sem höfnun Bein útsending: Bjarni og fleiri ræða almannatryggingafrumvarpið Gæsluvarðhald meints barnaníðings framlengt „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Stefnir í norðanhríð í vikunni Bíll hafnaði í Kópavogstjörn Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Vilja launað leyfi fyrir þolendur ofbeldis og vernd gegn uppsögn Faldi sig inni í fataskáp þegar lögregluna bar að garði Gildandi kjarasamningar ávísun á áframhaldandi verðbólgu Loks komnar af átakasvæðinu: „Átján tímar af þroti“ Sjá meira