Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Árni Sæberg skrifar 2. nóvember 2026 12:42 Ákærðir menn og verjendur streymdu í dómsali 101 og 102 í morgun. Vísir/Anton Brink Langflestir ákærðu í Landsbankamálinu svokallaða neita sök. Fjórir hafa játað sök samkvæmt varakröfu. Þetta gerir það að verkum að halda þarf aðalmeðferð með allt að 53 ákærðum. Líklega þarf að leigja sal undir aðalmeðferðina.
Þingfesting í málinu hófst klukkan 10 í morgun og salir 101 og 102 í dómhúsinu við Lækjartorg hafa verið teknir frá til klukkan 16 síðdegis. Ákærðu í málinu eru alls 71 en einn þeirra sætir aðeins upptökukröfu í málinu. Vegna þess mikla fjölda sem sætir ákæru var þeim skipt upp í sjö hópa en lokið var við að fá afstöðu meðlima sjöunda hópsins laust fyrir klukkan 12:30. Farið yfir skipulagið.Vísir/Anton Brink Þá var gert hádegishlé og eftir það verður farið yfir hvernig skal farið með þá ákærðu sem ekki tókst að birta ákæruna fyrir og þá sem ekki mættu í þingfestinguna, þrátt fyrir heppnaða birtingu. Fjórir játuðu Við þingfestinguna játuðu fjórir ákærðu sök samkvæmt varakröfu ákæruvaldsins um peningaþvætti af gáleysi og ákæruvaldið féllst á þær málalyktir. Átján ákærðu fengu frest til þess að gefa upp afstöðu sína til 11. nóvember næstkomandi, þegar fyrirtaka verður í málinu. 35 ákærðu neita sök í málinu, þar á meðal mennirnir tveir sem ákærðir eru fyrir að hagnýta sér galla í netbanka Landsbankans, sem var tilkominn vegna villu hjá Reiknistofu bankanna, til þess að svíkja út tæplega 96 milljónir króna. 14 ákærðu mættu ekki og boðuðu ekki forföll. Vænta má að útivistardómur falli í tilfelli þeirra flestra. Það þýðir að málið verður dómtekið án þess að þeir haldi uppi vörnum og sekt þeirra telst sönnuð. Allt að 53 í aðalmeðferð Ákveði allir átján sem fengu frest að halda uppi vörnum í málinu verða alls 53 sem það gera í aðalmeðferð. Dag- og staðsetning aðalmeðferðar verður ákveðin utan réttar þegar fyrirtakan hefur farið fram þann 11. nóvember. Vænta má að Héraðsdómur Reykjavíkur þurfi að taka sal á leigu undir aðalmeðferðina enda rúmast svo umfangsmikil aðalmeðferð ekki í dómhúsinu við Lækjartorg.
Landsbankinn Sviku milljónir af Landsbankanum Dómsmál Tengdar fréttir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Ákveði sakborningarnir sjötíu í Landsbankamálinu svokallaða að halda uppi vörnum er ekki óvarlegt að áætla að málskostnaður nemi hundruðum milljóna króna, sem myndi líklega lenda á ríkissjóði að stórum hluta. Reyndir verjendur sem Vísir hefur rætt við telja réttast að þorri sakborninga játi sök. 30. október 2026 18:01 Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Héraðsdómur Reykjavíkur hefur ákveðið að streyma þingfestingu í fjölmennasta sakamáli Íslandssögunnar yfir í annan sal í dómhúsinu við Lækjartorg. Sjötíu sæta ákæru í málinu. 28. október 2026 16:27 Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Fleiri fréttir Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Sjá meira
Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Ákveði sakborningarnir sjötíu í Landsbankamálinu svokallaða að halda uppi vörnum er ekki óvarlegt að áætla að málskostnaður nemi hundruðum milljóna króna, sem myndi líklega lenda á ríkissjóði að stórum hluta. Reyndir verjendur sem Vísir hefur rætt við telja réttast að þorri sakborninga játi sök. 30. október 2026 18:01
Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Héraðsdómur Reykjavíkur hefur ákveðið að streyma þingfestingu í fjölmennasta sakamáli Íslandssögunnar yfir í annan sal í dómhúsinu við Lækjartorg. Sjötíu sæta ákæru í málinu. 28. október 2026 16:27