Sóli Hólm berst við krabbamein Birgir Olgeirsson skrifar 3. október 2017 20:50 Sólmundur Hólm Sólmundsson. Vísir/Stefán
Fjölmiðlamaðurinn Sólmundur Hólm Sólmundsson, betur þekktur sem Sóli Hólm, greinir frá því á Facebook síðu sinni að hann hafi greinst með Hodgkins eitilfrumukrabbamein fyrir um tveimur og hálfum mánuði. „Forsagan er sú að ég tók eftir bólgu á hálsinu á mér eftir sturtu og dáðist að sköpunarverkinu Sólmundi Hólm. Ég fór til heimilislæknis sama dag og til að gera langa sögu stutta þá var búið að greina mig 11 dögum síðar. Ég fór svo í mína fyrstu lyfjagjöf þann 1. ágúst og hef farið á tveggja vikna fresti síðan þá,“ skrifar Sóli. Hann segir krabbameinstegundin nokkuð „góða“. „Eiginlega má bara segja að ég hafi verið heppinn. Tegundin svarar lyfjameðferð yfirleitt vel og batahorfur góðar,“ skrifar Sóli.Mikið áfallHann segir engu að síður alltaf mikið og stórt áfall að greinast með krabbamein, sama hversu meðhöndlanlegt það er. „Bæði fyrir þann sem greinist og ekki síst aðstandendur sem finna fyrir miklum vanmætti og varnarleysi. Fyrir mér var tíminn meðan verið var að greina meinið þó langerfiðastur. Þessi nagandi óvissa, vitandi að það væri eitthvað að og auðvitað óttast maður alltaf það allra, allra versta. Þegar greiningin svo kom þá var hún auðvitað miklu léttvægari en það sem mínar myrkustu hugsanir voru búnar að búa mig undir. Ég lagði því af stað í þetta ferðalag fullur af bjartsýni, jákvæðni og óútskýrðum krafti,“ skrifar Sóli.Lyfjameðferðin tekur sinn tollLyfjameðferðin hefur tekið sinn toll en farið betur í hann en óttaðist. „Vissulega er meðferðin þó farin að taka meiri og meiri toll. Ég er með minna og minna þrek og er lengur að jafna mig eftir hverja lyfjagjöf þó ég hafi aldrei verið rúmliggjandi af vanlíðan, langt því frá.“Sambýliskonan reynst honum afar vel í þessari baráttuHann segir sambýliskonu sína, fjölmiðlakonuna Viktoríu Hermannsdóttur, hafa reynst honum afskaplega vel á þessum erfiðu tímum. „Þó ég sé þokkalega ritfær get ég með engu móti komið því í nógu sterk orð hversu gott það hefur verið fyrir mig að hafa hana með mér í þessu. Það er efni í annan miklu lengri pistil. Ég er svo auðvitað einstaklega heppinn með vini og ættingja,“ skrifar Sóli.Fékk jákvæða niðurstöðu úr PET-skannaÁ dögunum fór hann til Kaupmannahafnar í svokallaðan PET-skanna og sýndi sú skoðun að lyfjameðferðin væri að bera góðan árangur. „Ég er rúmlega hálfnaður með meðferðina og sé fram á að vera búinn í byrjun nóvember. Þá tekur við endurhæfing til að ná aftur fullu þreki.“Hárið fékk að fjúkaHann segir eina af aukaverkunum lyfjameðferðarinnar að hárið þynnist eða hreinlega dettur af. Sóli stýrir spurningaþættinum Útsvar í Sjónvarpinu og segir hann sminkur RÚV hafa stráð dufti í hárið á honum fyrir hvern þátt svo það virðist þykkara. „Í dag gafst ég þó upp fyrir þynningunni og lét Nonna vin minn á Effect vaða með rúningsklippurnar á kollinn. Þegar Matthías minn kom heim úr skólanum í dag og spurði ég hvernig honum litist nú á nýju klippinguna. „Hún er fín. Þú ert bara ekkert ljótur svona,“ skrifar Sóli. Hann segir ekkert stórmál fyrir stutthærðan karlmann að snoða sig en bróðir hans og vinur ákváðu að raka einnig af sér allt hárið til að sýna honum stuðning.
Mest lesið Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Innlent „Ég hef aldrei séð svona samninga“ Innlent Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið Innlent Féll allt að tuttugu metra við foss á Snæfellsnesi Innlent Kettir drápust á meðan eigandinn var á ferðalagi Innlent Kominn undan feldi og svarið er nei Innlent Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Innlent Logar í yfirgefnum bústað við Elliðavatn Innlent Sömdu um reglulegar samfarir í ár eftir sambúðarslit Innlent Siguðu lögreglu á sofandi fastakúnna Innlent Fleiri fréttir Kanna samninga við Klíníkina vegna „hamfaraástands“ Vildi fá hestinn endurgreiddan þar sem hann var með aukatönn Viðræður við Klíníkina, barátta stórvelda og Breiðholt Got Talent Óðinn Svan leiðir L-listann Siguðu lögreglu á sofandi fastakúnna „Ég hef aldrei séð svona samninga“ Tveir veiðimenn fengu tvær milljónir frá Hval Boðar tímabundna heimild svo unnt sé að senda erlenda fanga fyrr úr landi Kominn undan feldi og svarið er nei Féll allt að tuttugu metra við foss á Snæfellsnesi Bíða enn gagna mánuði frá upphafi rannsóknar Gagnrýnin byggi „að miklu leyti á misskilningi“ Framlag Íslands mun minna en annarra Norðurlanda Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið VG vex og býður á stefnumót og Vor til vinstri leitar að fólki Allt rykbindiefni búið Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Bruninn látinn klára sig og vettvangur afhentur lögreglu Framlag Íslands hlutfallslega lítið og svifrykið hrellir borgarbúa Dorrit líkaði aldrei við „slepjulegan“ Epstein Tveggja bíla árekstur á Hellisheiði Fá sálfræðitíma en vilja bætur Yngra fólk líklegra til að strengja áramótaheit Kettir drápust á meðan eigandinn var á ferðalagi Ekki innritað í fjóra leikskóla í Reykjavík í haust Logar í yfirgefnum bústað við Elliðavatn Bæjarstjórinn einn á móti stækkun friðlýsingar Gróttu og Seltjarnar Líkamsárásir, þjófnaðir og fíkniefnabrot Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Ósammála um að það sé kostur að vera formaður utan þings Sjá meira