Alexandra lét lokkana fjúka fyrir góðan málstað Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 16. október 2017 17:00 Alexandra Sif Herleifsdóttir hafði með sér góða vinkonu sína þegar hárið var rakað af í dag. Vísir/Eyþór „
Ég ákvað bara að láta vaða,“ segir Alexandra Sif Herleifsdóttir en hún hefur síðustu vikur safnað fyrir samtökin Útmeð‘a. Alexandra hafði lofað Snapchat fylgjendum sínum því að ef söfnunin næði yfir 300.000 krónur myndi hún raka af sér hárið. Markmiðinu var náð svo í dag fengu fallegu lokkarnir hennar að fjúka. „Ég er sjálf búin að vera að glíma við sjálfsvígshugsanir. Eftir að ég varð vitni af því þegar einstaklingur framdi sjálfsvíg síðasta sumar, opnaði ég mig um það inni á Snapchat. Í kjölfarið hafði hafði ein sem vinnur hjá Geðhjálp samband við mig og sagði mér frá Útmeð’a.“ Alexandra vildi vekja athygli á því hversu mikilvægt það er fyrir fólk sem upplifir sjálfsvígshugsanir að leita sér hjálpar eða finna einhvern til þess að tala við. Henni fannst þetta málefni henta söfnuninni mjög vel. Það eru Geðhjálp og Hjálparsími Rauða krossins 1717 sem standa sameiginlega að forvarnarverkefninu Útmeð’a. Markmið verkefnisins var að stuðla að bættri geðheilsu meðal almennings með því að hvetja fólk, með sérstakri áherslu á ungt fólk, til að tjá sig um andlega líðan sína og leita sér faglegrar aðstoðar þegar á þarf að halda.Alexandra fékk hárgreiðslukonuna sína til þess að aðstoða sig við verkefnið. Vísir/EyþórHárið fer í hárkollur fyrir börn „Ég er komin með rúmlega 320.000 krónur. Markmiðið var að safna 300.000 krónum og þá myndi ég raka af mér hárið, ég náði því á miðvikudaginn. Það hægðist þá aðeins á söfnuninni þegar markmiðinu var náð en vonandi eiga fleiri eftir að styrkja söfnunina.“ Klukkan eitt í dag lét Alexandra Sif raka allt hárið af sér á hárgreiðslustofunni Space í Kópavogi en hún og gefur hún hárið í annað flott málefni. Með henni í för var Snædís Lilja dóttir bestu vinkonu hennar. „Ég á litla fjögurra ára vinkonu sem er með alopecia sjálfsofnæmissjúkdóm sem kom með mér í dag. Hún er ekki með neitt hár svo móðir hennar sagði henni frá þessu. Henni fannst þetta ótrúlega spennandi svo hún vildi vera viðstödd. Ég ætla svo að gefa hárið til samtaka sem gera hárkollur fyrir lítil börn.“Alexandra er ótrúlega ánægð með það hversu vel söfnunin gekk. Vísir/EyþórMargir að upplifa það sama „Ég er að þessu til þess að minna fólk á að það er allt í lagi að líða illa. Fyrsta skrefið í átt að bata er að tala við einhvern, til dæmis bara einhvern náin vin eða fjölskyldumeðlim. Það er svo mjög gott að leita sér aðstoðar þegar þetta er orðið að vandamáli. Það er ekki eðlilegt ástand að vera með sjálfsvígshugsanir og það er fólk þarna úti sem er tilbúið að hjálpa. Það er líka mikilvægt að muna að það er fólk þarna úti sem er að upplifa það sama. Ég veit að margir hugsa að þeir séu einir en það er ekki þannig.“ Sjálf segir Alexandra að hún hafi ekki verið á stað til þess að tjá sig um sín andlegu veikindi á sama tíma á síðasta ári. Hún er nú búin að vinna í sjálfri sér síðustu mánuði og líður mun betur í dag. Hún var sjálf lengi að átta sig á því hversu alvarlegt eigið þunglyndi væri og leitaði sér því ekki aðstoðar strax.Hárið verður notað í hárkollugerðVísir/EyþórHélt að þunglyndið væri bara tengt álagi „Ég var sjálf undir miklu álagi í skóla og hélt að þetta væri bara tengt því. En svo flutti ég til útlanda eftir námið en þunglyndið varð ekki eftir á Íslandi, það fylgir með manni ef maður vinnur ekki í sínum málum.“ Alexandra er íþróttafræðingur og opnaði Snapchat aðganginn lexaheilsa til þess að fræða fólk um líkamlega heilsu. Hún hefur þó einbeitt sér meira að andlegu hliðinni og fengið mikið lof fyrir. „Líkamleg og andleg heilsa tengjast órjúfanlegum böndum.“ Á heimasíðu verkefnisins Útmeð’a kemur fram að á bilinu 500 til 600 manns leita sér aðstoðar á heilsugæslustöðvum og í sjúkrahúsum á Íslandi vegna sjálfskaða í kjölfar vanlíðanar á hverju ári. Sjálfsvíg eru algengasta dánarorsök ungra karlmanna á Íslandi.Flottar vinkonur - Alexandra og Snædís á hárgreiðslustofunni í dagAlexandra„Ég er í smá spennufalli núna. Þetta er líka flottara en ég þorði að vona,“ sagði Alexandra í samtali við Vísi eftir að hárið fékk að fjúka í dag. Söfnunarreikningur Alexöndru er ennþá opinn:Reikningur: 130-05-063080Kennitala: 021089-2069Kass: 6625892
Mest lesið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Lífið Bein útsending frá Bergmáli á Þingvöllum Tónlist Dóttir Obama í íslenskri hönnun Tíska og hönnun Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Lífið Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Lífið Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Lífið Gull og gimsteinar leynast víða Lífið James Burrows látinn Bíó og sjónvarp „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Lífið Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum Lífið Fleiri fréttir Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Gull og gimsteinar leynast víða Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Sjá meira