Safna fyrir nýju athvarfi fyrir villiketti og kisur sem bjargað er úr erfiðum aðstæðum Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 20. október 2017 15:00 Dýraverndunarfélagið Villikettir hefur tekið við mörgum veikum kisum og hjúkrað þeim til heilsu. Villikettir
Dýraverndunarfélagið Villikettir tekur inn mörg hundruð ketti og kettlinga á hverju ári og hjálpar þeim að komast á ný heimili. Nú vantar félaginu húsnæði fyrir starfsemi sína til þess að geta hjálpað fleirum. Settu konurnar á bakvið samtökin því af stað söfnun á Karolinafund fyrir athvarf fyrir villi - og vergangskisur á Íslandi. „Skjólstæðingar félagsins eru kisur af öllum stærðum og gerðum, villi - og vergangskettir, kettlingar og kisur sem hafa búið við erfiðar aðstæður. Okkur langar að safna fyrir húsnæði til að geta hýst kisur í neyð, kisur í leit að heimili, litla kettlinga og kettlingafullar læður. Þörfin er mjög mikil - árlega þá erum við að koma að björgun milli tvö og þrjúhundruð katta. Við þurfum nú nauðsynlega á húsnæði að halda,“ segir á söfnunarsíðunni. „Við erum ótrúlega hissa og ánægðar, þetta er bara meiriháttar,“ segir María Krista Hreiðarsdóttir, ein af þeim sem stendur að baki félaginu og söfnuninni. Þegar þetta er skrifað er búið að safna fyrir 53 prósentum af upphæðinni en ennþá er nokkuð í land.Félaginu vantar húsnæði fyrir starfsemi sína til þess að geta hjálpað fleiri kisum í neyð.Villikettir„Um áramótin missum við hesthúsið þar sem við erum með tuttugu kisur í dag. Við erum að bíða eftir að fá lóð frá einhverju bæjarfélagi og erum að leita að staðsetningu sem hentar.“ María Krista segir að þær myndu þiggja bráðabirgðahúsnæði fyrir kisurnar þangað til nýtt húsnæði væri komið í notkun. „Við erum eiginlega pínu í vandræðum. Annars verðum við bara að koma þeim í fóstur og taka þær heim til okkar. Vonandi þarf ekki að bæta á húsnæðið okkar í Kristukoti því það athvarf er alveg sprungið utan af okkur.“ Draumur þeirra er að geta verið með tvö rými sem hýsa mætti læður með kettlinga, villinga á leið í geldingu og svo opið rými með kettlingum og kisum í mönnun þar sem þær venjast því að vera í kringum fólk. Vona þær að húsnæðið geti líka haft útigerði sem yrði eflaust vel nýtt.Algengt er að kettirnir sem finnast séu með augnsýkinguVillikettirDýraverndunarfélagið Villikettir hefur tekið við mörgum veikum kisum og hjúkrað þeim til heilsu. „Því miður er enn of algengt að kettir á bóndabæjum séu ekki geldir og því fæðast allt of margir kettlingar sem læðurnar ná hreinlega ekki að sinna og eru án eftirlits. Þeir eiga því miður ekki allir séns á heimili og því endar sú saga oftast á einn veg. Þessir kettlingar voru heppnir og eru nú í umsjón félagsins þar sem þeir fá lyf og umönnun allan sólarhringinn.“Sjá einnig: Kettlingar vanræktir á sveitabæÞessir vesalings kettlingar komu af sveitabæ. Þeir voru heppnir og eru nú í umsjón félagsins þar sem þeir fá lyf og umönnun allan sólarhringinn.VillikettirÞarf félagið líka oft að taka að sér kisur frá heimilum þar sem dýrahald hefur farið úr böndunum. Má þar nefna dæmi þar sem 100 kettir fundust í sama húsnæðinu. Á Karolinafund er saga kattarins Jón Páls sögð en hann var fjarlægður af heimili sem hafði misst tökin á dýrahaldi og þurfti að raka af honum feldinn sem var svo klepraður að dýrið gat sig varla hreyft. Loppurnar voru steyptar í úrgang, hann var mjög þunglyndur og við sáum ekki fram á að hann yrði nokkurn tíma glaður kisi aftur. Hann fékk þó á endanum yndislegt heimili og er nú kóngur í ríki sínu með fallegan feld, hraustur og kátur.Kötturinn Jón Páll fannst í slæmu ástandi.Villikettir„Umönnun lítilla móðurlausra kettlinga tekur heilmikið á sjálfboðaliða Villikatta. Pelagjöf er nauðsynleg á tveggja tíma fresti og fyrir vinnandi fólk þá getur þessi vinna verið óhemju krefjandi. Þó er öllu fórnað fyrir þessar ósjálfbjarga verur sem þrá ekkert heitar en að verða stór og sterk,“ segir á söfnunarsíðunni. Þessir kettlingar voru móðurlausir en fengu annað tækifæri þökk sé Villiköttum.VillikettirÞeir sem óska eftir því að taka að sér kisu frá félaginu Villikettir þurfa að fylla út umsókn á Facebook síðu Villikatta. Nánari upplýsingar um söfnunina má finna á Karolinafund.
Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira