Fagna komu íslenska málarans sem ætlar að skora mörkin fyrir sænska liðið næsta sumar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. nóvember 2017 18:00 Rakel Hönnudóttir. Mynd/KSÍ „
Markvörður og málari en nú ætlar hún að skora mörkin fyrir LB07,“ segir í fyrirsögninni á grein Sydsvenskan um samning íslensku landsliðskonunnar við sænska liðið Limhamn Bunkeflo 2007. Rakel Hönnudóttir yfirgefur Breiðablik og hefur ákveðið að fylgja kærastanum til Svíþjóðar og spila með Limhamn Bunkeflo 2007 næsta sumar. Þetta verður fyrsta sumar hennar í atvinnumennsku en hún hefur spilað með Þór/KA og Breiðablik í Pepsi-deildinni undanfarin ár. Rakel kveður Breiðabliksliðið sem fyrirliði liðsins alveg eins og hún gerði hjá Þór/KA fyrir sex árum áður. „Mín óskastaða er framliggjandi miðjumaður en ég get spilað allar stöður. Ég fór meira að segja tvisvar sinnum í markið í meistaraflokki þegar markvörðurinn okkar fékk rautt spjald,“ segir Rakel Hönnudóttir í viðtalinu við Sydsvenskan. „Það eru engir atvinnumenn í íslensku deildinni og allar eru því að læra eða vinna. Ég vann sem málari með fótboltanum. Þetta verður betra hjá LB07.,“ sagði Rakel. Kærasti hennar er Andri Rúnar Bjarnason, sem jafnaði markametið í efstu deild karla í sumar með því að skora 19 mörk í Pepsi-deildinni. Hann hefur samið við sænska b-deildarliðið Helsingborg. „Við munum búa í Helsingborg. Það var annað sænskt lið sem hafði áhuga en við náðum ekki saman. Það var ekkert öruggt að ég færi til Svíþjóðar því ég var líka með tilboð frá öðum löndum,“ sagði Rakel. Hún segir að vinskapur hennar og íslenska landsliðsmiðvarðarins Önnu Bjarkar Kristjánsdóttur, leikmanni LB07, eigi mikinn þátt í því að Rakel valdi liðið. „Við spilum saman með landsliðinu og erum mjög góðar vinkonur. Hún hefur talað vel um félagið og ég á líka margar vinkonur sem hafa spilað í Svíþjóð. Þetta er mjög góða deild sem ég hef fylgst með í mörg ár,“ segir Rakel. Rakel gerði bara eins árs samning við Limhamn Bunkeflo 2007 en aðalmaðurinn hjá félaginu, Johan Andersson, vildi gera fimm ára samning við íslensku landsliðskonuna. Það má finna allt viðtalið við Rakel með því að smella hér.
Fótbolti á Norðurlöndum Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Fleiri fréttir Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ Sjá meira