Aldrei fleiri skjálftar mælst í Öræfajökli Ingvar Þór Björnsson skrifar 7. desember 2017 18:29 Á síðustu vikum hefur vöktun við Öræfajökul verið aukin til muna. Vísir/Gunnþóra
Á síðustu viku hefur smáskjálftum sem mælst hafa í Öræfajökli fjölgað verulega. Í síðustu viku mældust 160 smáskjálftar en svo margir skjálftar hafa ekki mælst þar fyrr. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra. Í dag var haldinn fundur í vísindaráði almannavarna um Öræfajökul. Jarðskjálftarnir eru aðallega dreifðir í og við öskjuna í efstu 10 kílómetrum jarðskorpunnar. Í tilkynningunni kemur fram að nýjustu mælingar á sigkatlinum í öskju Öræfajökuls sýna að hann heldur áfram að dýpka og stækka í samræmi við viðvarandi aukna jarðhitavirkni og að vatn renni frá katlinum. Jafnframt kemur fram að mælingar í Skaftafellsám Virkisá, Kotá og Kvíá sýna óverulegar breytingar undanfarnar vikur. Frekari túlkun á mælingum á jarðskorpubreytingum síðustu ára sýnir smávægilegar færslur við suðurjarðar jökulsins. Atburðarás og mælingar á svæðinu benda til minniháttar kvikuinnskots á um 2-6 kílómetra dýpi undir fjallinu. Á síðustu vikum hefur vöktun við Öræfajökul verið aukin til muna. Kemur fram að bætt hafi verið við vatnsmælum, jarðskjálftamælum og síritandi GPS tæki. Þá hefur rannsóknum á vettvangi verið fjölgað og fleiri vefmyndavélum komið upp.
Eldgos og jarðhræringar Mest lesið Tálbeitan var með einkabílstjóra og gisti á Edition Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Elduðu úti, óðu yfir vaktstjórann og fylltu matsalinn Innlent Hátt í 400 kynlífsmyndböndum lekið í mögulegu samsæri Erlent Ræddi við Pútín og varaði við stigmögnun Erlent Segir Heimildarmenn hafa njósnað um son hans Innlent „Dapurlegt að stjórnmálafólk loki augunum fyrir stöðunni“ Innlent Allt að tuttugu stiga hiti Veður Vill losna við tálma úr vegi sínum Erlent „Ásakanir Jóns Gunnarssonar eru rangar“ Innlent Fleiri fréttir „Ásakanir Jóns Gunnarssonar eru rangar“ Elduðu úti, óðu yfir vaktstjórann og fylltu matsalinn Nauðsynlegt að sameinast um aðgerðir í jafnréttismálum Tálbeita á Edition og vegklæðning flettist af í Öxnadal Bein útsending: Heimsþing kvenleiðtoga Settur forstjóri skipaður forstjóri Sautján sóttu um embætti skrifstofustjóra fjármála Pallborðið: Hvaða lausnir bjóða flokkarnir? Fimm prósent segja innflytjendamálin mikilvægust Verðlaunuð fyrir að berjast gegn slúðri Tveir af fimm telja hvalveiðar veikja stöðu Íslands í alþjóðlegum viðskiptum Ósammála því að skoðanakannanir séu ekki nákvæmar Óvenju margar bilanir í götulýsingu í Kópavogbæ Tálbeitan var með einkabílstjóra og gisti á Edition Segir Heimildarmenn hafa njósnað um son hans Myndaveisla: Grindvíkingar komu saman ári eftir rýmingu Björguðu villtum ferðamönnum í Fljótsdal „Dapurlegt að stjórnmálafólk loki augunum fyrir stöðunni“ „Erfiðir tímar iðulega undanfari betri tíma“ „Ég skildi ekki konuna eina eftir heima í þessum látum“ Þversagnakennt hve lítið sé talað loftslagsmál Sterkar systur á Selfossi keppa á heimsmeistaramóti Nýtt myndefni: Sparkað í blóðmerar á íslenskum sveitarbæ Sparkað í blóðmerar og eitt ár frá rýmingu Grindavíkur Í sjálfheldu á eigin svölum Nýtt líkan nýjung á Íslandi: VG og Sósíalistar nái ekki á þing og óvissa um Miðflokk Maðurinn er fundinn Stöðvun megi rekja til klúðurs og skorts á fjármagni Ótryggðir bændur Ár frá rýmingu í Grindavík: „Með mestu hamförum sem riðið hafa yfir Ísland“ Sjá meira