Kærir Garðabæ fyrir að leyfa flóðlýsingu Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 5. desember 2017 06:45 Mynd af framkvæmdum við nýjan íþróttavöll Stjörnunnar nærri Túnfit fylgdu kæru á hendur bænum. Breytingin er sögð vera "meiriháttar“ fyrir íbúana.
Bæjarstjóra hefur verið falið að gæta hagsmuna Garðabæjar í máli sem íbúi við Túnfit í Garðabæ hefur kært til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kæran snýr að ákvörðun bæjarráðs um að veita framkvæmdaleyfi fyrir ljósabúnaði fyrir gervigrasvöll Stjörnunnar í bæjargarði í Garðabæ. Í kærunni segir að framkvæmdin sé hvorki í samræmi við gildandi aðal- né deiliskipulag fyrir svæðið. Því sé um brot á skipulagslögum og stjórnsýslulögum að ræða. „Þá uppfylli framkvæmdaleyfið ekki kröfur skipulagslaga um að öll hönnunargögn verði að liggja fyrir þegar framkvæmdaleyfi er gefið út,“ segir enn fremur. Vinnulag bæjarins er harðlega gagnrýnt í kærunni. Segir þar að bærinn hafi gefið út framkvæmdaleyfi vegna vallarins þann 18. maí 2017 og hafi hafið framkvæmdir strax daginn eftir. Íbúum hafi því ekki gefist tími til að kynna sér framkvæmdaleyfið og lögbundinn þrjátíu daga kærufrestur íbúa hafi verið virtur að vettugi. Jafnframt er bærinn sagður reyna að koma sér undan því að klára hönnun vallarins að fullu þótt framkvæmdir séu langt komnar með því að búta framkvæmdina niður og gefa út fjölda framkvæmdaleyfa. „Vinnulag Garðabæjar hefur gert það að verkum að jafnvel þó ÚUA úrskurði íbúum í vil í kærumáli þeirra þá eru hverfandi líkur á að gervigrasvöllurinn yrði fjarlægður. Kostnaðurinn við slíkt yrði mjög mikill og myndi lenda á íbúum Garðabæjar,“ segir í kærunni en á annan tug íbúa kærðu framkvæmdaleyfi vegna fyrri verkþátta í maí. Sú kæra er enn til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni. Bærinn er aukinheldur sakaður um að hraða framkvæmdum í því skyni að tryggja að völlurinn standi áfram jafnvel ef svo kynni að fara að nefndin úrskurðaði byggingu vallarins lögbrot. Íbúinn sem um ræðir keypti hús sitt árið 2013 og stendur það rétt hjá fyrirhuguðum bæjargarði. Segir í kærunni að umbreytingin á bæjargarðssvæðinu, þar sem útivistarsvæði sé „skipt út fyrir áberandi íþróttamannvirki“ sé grundvallarbreyting á þeim gæðum sem kærandi bjóst við í næsta nágrenni við heimili sitt og hafði verið auglýst af hálfu Garðabæjar. Íbúinn vildi ekki tjá sig um málið í samtali við Fréttablaðið.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í vestur vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira