Innlent

Hellis­heiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss

Freyja Þórisdóttir skrifar
Langar bílaraðir hafa myndast á Hellisheiði en óljóst er hvenær vinnu lýkur á vettvangi.
Langar bílaraðir hafa myndast á Hellisheiði en óljóst er hvenær vinnu lýkur á vettvangi. Aðsend

Hellisheiði er lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss og samkvæmt upplýsingum á vef Vegagerðarinnar er hálka og éljagangur á Þrengslavegi. Slysið átti sér stað á tíunda tímanum og var einn fluttur á slysadeild til aðhlynningar.

„Það varð slys á Hellisheiði upp úr klukkan hálf tíu í kvöld,“ staðfestir Magnús Ragnarsson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi, en hann segir einn hafa verið fluttan alvarlega slasaðan á slysadeild til athugunar og aðhlynningar.

Þá sé mikil hálka á vettvangi og að í kvöld hafi fjöldi umferðaróhappa orðið á vegkaflanum. Mest hafi verið um bíla sem fóru út af veginum og þá segist hann telja það allt hafa verið fólksbíla.

Hellisheiði er lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss. Hálka og éljagangur er á Þrengslavegi, en hálka er á Bláfjallavegi, er fram kemur á vef Vegagerðarinnar.Skjáskot

Verið sé að vinna á vettvangi og ekki sé unnt að segja til um hvenær opnað verði fyrir umferð á ný. Hægt er að fylgjast með því hvenær vegurinn verður opnaður á ný á vef Vegagerðarinnar en þar eru einnig settar inn uppfærslur er varða færð.



Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×