Vildi 13 milljónir í bætur frá borginni eftir að sonurinn blindaðist á öðru auga Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 4. desember 2017 14:24 Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í nóvember en nýlega birtur á vef dómstólanna. vísir/gva
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Reykjavíkurborg af 13 milljóna króna skaðabótakröfu foreldris sem höfðuðu mál eftir að sonur þeirra slasaðist alvarlega á öðru auga á smíðavelli borgarinnar sumarið 2012. Slysið varð með þeim hætti að annar drengur kastaði spýtu í átt að honum sem lenti í auga hans. Var drengurinn fluttur á slysadeild þar sem hann gekkst undir aðgerð á auga en ekki reyndist unnt að bjarga því. Er hann í dag alblindur á auganu og notar gerviauga í dag. Drengirnir eru báðir undir 12 ára aldri og voru á smíðavellinum seint um kvöld, eða eftir klukkan 22 að því er fram kemur í dómnum. Engir starfsmenn á vegum borgarinnar voru því á vellinum en foreldri drengsins sem slasaðist taldi að slysið mætti rekja til „hættueiginleika þess að láta smíðasvæðið vera eftirlitslaust með „naglaspýtum“ á víð og dreif þar sem börn leiki sér,“ eins og segir í dómnum. Taldi foreldrið að borginni hefði borið að gæta þess að svæðið væri ekki hættulegt fyrir börn og að full ástæða hefði verið fyrir borgina til þess að girða svæðið af eða hreinsa það að loknum degi.Geti ekki borið hlutlæga ábyrgð á því sem gerist á opnum svæðum í borginni Reykjavíkurborg byggði á því að hún gæti ekki borið hlutlæga ábyrgð á því sem gerist á opnum svæðum í borginni. Taldi borgin að foreldrið hefði ekki sýnt fram á að starfsmenn borgarinnar hefðu sýnt af sér gáleysi eða að þeir hafi á einhvern hátt vanrækt skyldur sínar. Þá hafi foreldrið ekki sannað orsakatengsl á milli meintrar vanrækslu borgarinnar og tjónsins sem drengurinn varð fyrir. „Stefndi tekur fram að B hafi orðið fyrir tjóni vegna þess að þriðji aðili kastaði í hann spýtu. Stefndi geti ekki verið ábyrgur fyrir tjóni sem verði vegna ólögmætra athafna þriðja manns. Drengurinn hafi orðið fyrir atlögu, en sá sem kastað hafi spýtunni hafi aðeins verið [...] ára gamall og of ungur til að gera sér grein fyrir hversu alvarlegar afleiðingar gátu hlotist af gjörðum hans. Þannig megi færa rök fyrir því að tjón B hafi verið óhappatilviljun enda ljóst að margir hafi fengið í sig spýtu án þess að afleiðingarnar hafi orðið svo alvarlegar og varanlegar. Stefndi tekur fram að slysið hafi átt sér stað kl. [...]. Engin starfsemi hafi á þessum tíma verið á vegum stefnda Reykjavíkurborgar við [...] eða smíðavellina. Samkvæmt 92. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 sé börnum, 12 ára og yngri, ekki heimilt að vera á almannafæri eftir kl. 22:00 á sumartíma, nema í fylgd með fullorðnum. Það sé því ljóst að báðir drengirnir sem hlut áttu að máli voru á almannafæri eftir leyfilegan tíma án fylgdar fullorðinna. Ábyrgð á því verði ekki lögð á aðra en forráðamenn þeirra,“ segir í dómnum en B er drengurinn sem fékk spýtuna í sig. Þá mótmælti borgin því að naglaspýtur hafi verið á víð og dreif á smíðavellinum.Slysið ekki rakið til vanrækslu starfsmanna borgarinnar á smíðavellinum Í niðurstöðu dómsins kemur fram að á myndskeiði af atburðinum megi sjá aðbúnaðinn á smíðavellinum. Þar sjáist að timburbrettum sem voru notuð til að byggja kofa hafi verð raðað snyrtilega á einum stað á lóðinni og þá hafi ekki verið hægt að sjá laust timbur eða spýtur á jörðinni eða í kringum kofa sem höfðu verið reistir. „Bera gögn málsins ekki annað með sér en að vel hafi verið gengið frá smíðavellinum af hálfu þeirra sem ábyrgð báru á þeirri starfsemi sem þar fór fram. Verður slys stefnanda því ekki rakið til vanrækslu stefnda með smíðavellinum. Þá verður ekki talið að á stefnda hafi hvílt skylda til að girða smíðavöllinn sérstaklega af eða hafa sérstakt eftirlit með skólalóðinni og smíðavellinum utan vinnutíma starfsmanna sem þar störfuðu, en eins og áður hefur komið fram varð slysið seint að kvöldi. Samkvæmt framansögðu verður ekki talið að tjón stefnanda sé að rekja til athafna eða athafnaleysis sem stefndi, Reykjavíkurborg, beri skaðabótaábyrgð á. Telur dómurinn að um óhappatilvik hafi verið að ræða, sem hvorki verður rakið til aðbúnaðar á skólalóðinni né saknæmrar eða ólögmætrar háttsemi starfsmanna stefnda. Ber því að sýkna stefnda af kröfum stefnanda í máli þessu,“ segir í niðurstöðu dómsins sem lesa má í heild sinni hér.
Mest lesið „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð Innlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Innlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Innlent Fannst hann ekki geta haldið áfram Erlent Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Erlent Fleiri fréttir Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Allt hnífjafnt í nýjum þjóðarpúlsi og reynt aftur við Lagarfljót Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Bændur segja nei Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Skipar Eirík og Hildi sem landsréttardómara Landrisi í Öskju er lokið Sjá meira