Sagði Ástrala að Rússar sætu á upplýsingum um Clinton áður en það var opinbert

Papadopoulos mun hafa sagt þetta við Alexander Downer eftir mikla drykkju. Leyniþjónustur og öryggisstofnanir eiga í nánu samstarfi við stofnanir Bandaríkjanna og tilkynntu Ástralar ummæli Papadopoulos til Alríkislögreglunnar, eða FBI.
Samkvæmt frétt New York Times, sem byggir á samtölum við ástralska og bandaríska embættismenn, hafði Papadopoulos fengið þessar upplýsingar um þremur vikum áður frá maltneskum prófessor með tengsl við Utanríkisráðuneyti Rússlands.
Starfar með rannsakendum
Papadopoulos hefur játað að hafa logið að starfsmanni FBI um fundi sína við rússneska embættismenn og er vitni í rannsókn sérstaka saksóknarans Robert Mueller. Starfsmenn Trump hafa haldið því fram að Papadopoulos hafi verið áhrifalaus sjálfboðaliði hjá framboði forsetans eða „kaffi strákur“ en New York Times segir að gögn sem blaðamenn miðilsins hafi undir höndum sýni að svo sé ekki.
Papadopoulos hafi til dæmis komið á fundi á milli Trump og Abdel Fattah el-Sissi, forseta Egyptalands, tveimur mánuðum fyrir kosningarnar í fyrra. Þá var Papadopoulos hættur hjá framboðinu.
Donald Trump og ýmsir bandamenn hans hafa gagnrýnt rannsókn Mueller og FBI harðlega að undanförnu. Meðal annars hefur því verið haldið fram að rannsókn FBI hafi byrjað eftir að „Steele-skýrslan“ svokallaða hafi litið dagsins ljós.
Sjá einnig: Trump og starfsmenn hans gagnrýna Alríkislögregluna harðlega
Það er skýrsla sem unnin var af fyrrverandi breskum leyniþjónustumanni sem rannsakaði tengsl Trump við Rússland og umsvif hans þar. Steele var upprunalega ráðinn af andstæðingum Trump innan Repúblikanaflokksins en eftir að Trump bar sigur úr býtum í forvali flokksins var skýrslan fjármögnuð af framboði Hillary Clinton.
Robert Mueller var skipaður sérstakur saksóknari eftir að Donald Trump viðurkenndi í sjónvarpsviðtali að hafa rekið James Comey, fyrrverandi yfirmann FBI, vegna rannsóknar stofnunarinnar á meintu samstarfi framboðsins og Rússa.
Tengdar fréttir

Trump segir orðspor FBI í molum
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, vandar bandarísku alríkislögreglunni FBI ekki kveðjurnar á Twitter síðu sinni í dag. Hann segir orðspor FBI í molum.

Mueller veik FBI-manni til hliðar vegna skilaboða um Trump
Alríkislögreglumaður sem vann við rannsókn á afskiptum Rússa af forsetakosningunum í Bandaríkjunum er grunaður um að hafa skipst á skilaboðum við hjákonu sína sem túlka mætti sem neikvæð um Trump forseta.

Trump þrýsti á þingmenn um að hætta rannsókn á Rússatengslum
Bandaríkjaforseti bað nokkra þingmenn repúblikana um að ljúka rannsókn Bandaríkjaþings á afskiptum Rússa af forsetakosningunum í sumar.

Banki á Kýpur með tengsl við Rússland til rannsóknar hjá FBI
Bandaríska alríkislögreglan, FBI, hefur beðið yfirvöld á Kýpur um upplýsingar er varða fjárhag banka sem nú hefur verið lokað en var notaður af ríkum, rússneskum stjórnmálamönnum.

Óttast brottrekstur Mueller í kjölfar árása
Einhverjir stuðningsmenn Trump hafa jafnvel kallað eftir því að gervallri forystu Alríkislögreglu Bandaríkjanna, FBI, verði skipt út og að nýr sérstakur saksóknari verði skipaður til að rannsaka Alríkislögregluna.

Með tugi þúsunda tölvupósta frá Trump-teyminu
Robert Mueller, sérstakur rannsakandi bandaríska dómsmálaráðuneytisins, er sagður hafa komist yfir tugi þúsunda tölvupósta frá teymi Donald Trump, forseta Bandaríkjanna,

Samstarfsmaður kosningastjóra Trump sagður tengjast rússnesku leyniþjónustunni
Fyrrverandi kosningarstjóri Trump sem er ákærður fyrir peningaþvætti og fleira er sagður hafa unnið að skoðanagrein um eigin störf með rússneskum samstarfsmanni á laun.