Enn logar í olíuflutningaskipi í Kínahafi Kjartan Kjartansson skrifar 9. janúar 2018 12:11 Ekkert hefur spurst til áhafnar olíuflutningaskipsins eftir að eldur kom upp í því við árekstur á laugardagskvöld. Vísir/AFP
Slæmt veður hefur torveldað björgunarstarf á Kínahafi þar sem enn logar eldur í olíuflutningaskipi sem lenti í árekstri við flutningaskip á laugardagskvöld. Rúmlega þrjátíu manna áhafnar skipsins er enn saknað og óttast er að meiriháttar umhverfisslys verði vegna olíuleka. Skipið er um 260 kílómetra utan af Sjanghæ á austurströnd Kína. Um borð eru 130.000 tonn af þunnfljótandi olíu, léttari útgáfu af hráolíu sem talin er enn hættulegri fyrir umhverfið. Olían er sögð halda áfram að leka úr skipinu, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Lík eins skipverja hefur fundist en annars hefur ekkert spurst 31 skipverja sem var um borð í tankskipinu sem er í íranskri eigu. Þrjátíu úr áhöfninni voru Íranar en tveir frá Bangladess. Mikið hvassviðri, rigning og allt að fjögurra metra háar öldur eru nú á slysstað. Því hefur gengið erfiðlega að ráða niðurlögum eldsins og að halda olíulekanum í skefjum. Ekki liggur fyrir hvers vegna skipin tvö rákust á. Olíuflutningaskipið Sanchi var á leið með milljón tonn af olíu frá Íran til Suður-Kóreu þegar það lenti í árekstri við kínverskt fragtskip sem var að flytja korn frá Bandaríkjunum.
Mest lesið Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira