Ráðist á Ouagadougou Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 3. mars 2018 09:00 Herinn barðist við skæruliða í Ouagadougou. Nordicphotos/AFP
Búrkína Fasó Skæruliðar réðust í gær á nokkrar stofnanir í Ouagadougou, höfuðborg Búrkína Fasó, og voru franska sendiráðið og höfuðstöðvar búrkínska hersins á meðal skotmarka. Í yfirlýsingu frá búrkínsku ríkisstjórninni sagði að fjórir árásarmannanna hefðu verið felldir í sendiráðinu og að minnsta kosti tveir á herstöðinni. Nokkrir her- og lögreglumenn væru særðir en engar tilkynningar um andlát hefðu borist. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni. Remis Fulgance Dandijnou upplýsingamálaráðherra sagði í viðtali við ríkissjónvarp Afríkuríkisins að allt benti til þess að um hryðjuverk væri að ræða. BBC greindi frá því að vitni hefðu séð þungvopnaða menn stíga út úr bíl sem snarhemlaði. Þeir hófu þá skothríð og héldu í átt að franska sendiráðinu. Armand Béouindé, borgarstjóri Ouagadougou, sagði við franska blaðið Le Monde að árásarmenn hefðu sömuleiðis skotið á ráðhús borgarinnar og að gluggarnir á skrifstofu borgarstjóra hefðu brotnað þegar skotið var á bygginguna. „Mér skilst að þetta séu íslamskir öfgamenn,“ sagði borgarstjórinn.
Birtist í Fréttablaðinu Búrkína Fasó Mest lesið Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fleiri fréttir Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Sjá meira