Aron Pálmarsson tekur við fyrirliðabandinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. mars 2018 14:15 Aron Pálmarsson. Vísir/Ernir
Aron Pálmarsson tekur við fyrirliðabandinu í fjarveru Guðjóns Vals Sigurðssonar. Guðjón Valur fær frí í fyrsta verkefni landsliðsins undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar. Guðmundur Guðmundsson gaf út sinn fyrsta landsliðshóp í dag eftir að hann tók aftur við karlalandsliðinu í handbolta og um leið tilkynnti þjálfarinn um nýjan fyrirliða liðsins. Guðjón Valur Sigurðsson hefur verið fyrirliði íslenska landsliðsins undanfarin sex ár og að auki í nokkur skipti þar á undan þegar Ólafur Stefánsson forfallaðist. Nú er Guðjón Valur hinsvegar ekki í hópnum af fjölskylduaðstæðum. Ólafur Stefánsson var fyrirliði íslenska landsliðsins þegar Guðmundur stýrði íslenska landsliðnu síðast á Ólympíuleikunum í London 2012 en Dagur Sigurðsson var fyrirliði Guðmundar þegar hann tók fyrst við landsliðinu árið 2001. Nú fær Aron Pálmarsson fyrirliðabandið í Golden League æfingamótinu sem fer fram í Noregi í byrjun aprílmánaðar. Íslenska liðið mætir þær Noregi, Frakklandi og fyrrverandi lærisveinum Guðmundar í danska landsliðinu. Það mátti heyra á Guðmundi að hann ætli sér að kalla aftur á Guðjón Val í næstu verkefnum en þá verður að koma í ljós hvort að Aron haldi fyrirliðabandinu í framhaldinu.
Íslenski handboltinn Handbolti Mest lesið Sakna Orra enn sárt og vandræðin aukast Fótbolti Fimmtugur og fúlskeggjaður Svíi stal senunni á HM Sport Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Handbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Enski boltinn „Held að ég gæti ekki hætt í fótbolta“ Enski boltinn Álftanes - Tindastóll 78-137 | Metin slegin í stórsigri Stólanna Körfubolti Brasilíumenn byrja vel undir stjórn Menezes - myndband Fótbolti Dagskráin í dag: Salah, Doc Zone og auðveld bráð Arsenal Sport Algjörir yfirburðir Noregs halda áfram Handbolti Fleiri fréttir Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Algjörir yfirburðir Noregs halda áfram Langri þrautagöngu Þýskalands lokið Boða uppsagnir hjá Íslendingaliðinu Rúnar snýr aftur í þýsku úrvalsdeildina „Þetta var afleitt, ég segi bara afsakið“ „Má ekki gleyma kónginum á Akureyri“ Haukur í ham gegn sveinum Guðjóns Vals Framarar hefndu loks með stórsigri KA - Afturelding 22-28 | Öruggt hjá gestunum á Akureyri Gísli meiddist en fór aftur inn á völlinn: „Þurfti að tala læknana svolítið til“ Orri með þrjú mörk er Sporting sendi skýr skilaboð Danir úr leik á HM Taphrina HK á enda eftir dramatískar lokasekúndur Tíu íslensk mörk er Magdeburg vann Melsungen Haukar jafna Val að stigum á toppi deildarinnar FH sótti sigur í greipar ÍBV og Valur vann spennutrylli Benedikt með fjögur mörk í öruggum sigri Holland áfram í undanúrslit og mætir Noregi Norska landsliðið flaug áfram í undanúrslit Stórleikur Birgis Steins í sex marka sigri Fjögur mörk Elvars dugðu skammt í þungu tapi Þýska stálið flaug áfram í undanúrslit Toppkonur Íslands á HM í handbolta 2025 Kom færandi hendi eftir að hafa skotið ljósmyndarann niður Stjörnur Kolstad þurfa að taka á sig launalækkun Átta liða úrslitin á HM klár Ótrúlegir yfirburðir Noregs og Danir enduðu líka á toppnum Ýmir lenti í íslensku hakkavélinni og enn bíður Blær Skýrsla Ágústs: Ekki lengur reynslulausar Sjá meira