Óttast að 400.000 börn gætu soltið í Kongó Kjartan Kjartansson skrifar 11. maí 2018 16:02 Mæður bíða með börnum sínum eftir matvælaaðstoð í Kasai-héraði í Kongó. Vísir/AFP
Sameinuðu þjóðirnar vara við því að um 400.000 börn í Kasai-héraði í Kongó eigi á hættu að verða hungurmorða. Þúsundir fjölskyldna hafa lengt á vergangi vegna átaka sem brutust út í héraðinu árið 2016. Fólkið sem lagði á flótta hefur hafst við í óbyggðum þar sem matur og vatn er af skornum skammti í marga mánuði. Óttast er að margir hafi þegar látið lífið. Sameinuðu þjóðirnar lýstu yfir hæsta mögulega neyðarástandi í Kongó í desember. Það er sambærilegt við Jemen, Sýrland og Írak. Christophe Boulierac, talsmaður Unicef, barnahjálpar SÞ, segist hafa orðið fyrir áfalli vegna þess sem hann sá í nýlegri heimsókn til Kasai. Illa vannærð börn lágu þá á sjúkrahúsum og nokkur þeirra dóu á meðan hann var á svæðinu, að því er breska ríkisútvarpið BBC hefur eftir honum. „Við erum ekki að segja að börn eigi á hættu að deyja úr vannæringu í Kasai, við erum að segja að börn eru þegar að deyja, þau eru að deyja, þau hafa dáið, í þögn, úti í óbyggðum,“ segir Boulierac. Fjórar milljónir manna í Kasai eru sagðar hjálpar þurfi vegna uppreisnarinnar sem geisar þar. Unicef hefur óskað eftir 88 milljónum dollara í neyðaraðstoð fyrir íbúa héraðsins.
Mest lesið „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Innlent Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Innlent Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent Óvissa með sólmyrkvaveður Innlent Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Innlent Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Erlent Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Innlent Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Innlent „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Fleiri fréttir Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Sjá meira