Rússneskur ólígarki sækist eftir ísraelsku ríkisfangi Kjartan Kjartansson skrifar 28. maí 2018 21:02 Abramóvitsj er gyðingur og getur því fengið ríkisborgararétt í Ísrael. Vísir/EPA
Róman Abramóvitsj, rússneski ólígarkinn sem á meðal annars enska knattspyrnuliðið Chelsea, er farinn til Ísraels þar sem hann getur fengið ríkisborgararétt. Auðkýfingurinn hefur átt í erfiðleikum með að fá landvistarleyfi sitt á Bretlandi endurnýjað vegna spennu í samskiptum Bretlands og Rússlands. Innflytjendayfirvöld í Ísrael segja við breska ríkisútvarpið BBC að Abramóvitsj hafi farið í viðtal í ísraelska sendiráðinu í Moskvu í síðustu viku. Talsmaður auðjöfursins vildi hins vegar ekki staðfesta að hann hefði þegar fengið ríkisborgararétt. Reuters-fréttastofan hefur eftir ísraelskum fjölmiðlum að Abramóvitsj hafi þegar fengið ríkisborgararétt. Hann ætli sér að flytja til Ísrael og hann hafi keypt sér húsnæði þar. Abramóvitsj gat ekki verið viðstaddur sigur Chelsea í ensku bikarkeppninni fyrr í þessum mánuði vegna vandræðanna með landvistarleyfið. Hann er gyðingur og getur því fengið ríkisborgararétt í Ísrael. Hann yrði þá ríkasti maður landsins. Ísraelskt vegabréf gerði Abramóvitsj kleift að dveljast í Bretlandi til skamms tíma án vegabréfaáritunar. Grunnt hefur verið á því góða á milli breskra og rússneskra stjórnvalda eftir að eitrað var fyrir rússneskum fyrrverandi njósnara í bænum Salisbury í mars. Bresk stjórnvöld saka ríkisstjórn Vladímírs Pútín um að hafa staðið að tilræðinu.
Tengdar fréttir Eigandi Chelsea mátti ekki vera viðstaddur bikarúrslitaleikinn Eigandi Chelsea gat ekki verið viðstaddur þegar lið hans lyfti enska bikarnum um helgina því landvistarleyfi hans í Bretlandi er útrunnið. 20. maí 2018 21:45 Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira
Eigandi Chelsea mátti ekki vera viðstaddur bikarúrslitaleikinn Eigandi Chelsea gat ekki verið viðstaddur þegar lið hans lyfti enska bikarnum um helgina því landvistarleyfi hans í Bretlandi er útrunnið. 20. maí 2018 21:45