

Hugleiðingar í tengslum við kjaradeilu ljósmæðra
Það er gaman að velta því fyrir sér hvaðan fegurðin kemur sem við tengjum við þetta orð. Er það e.t.v sú staðreynd að fæðing barns er í huga flestra ólýsanlega stórkostleg stund. Kraftaverki líkust! Stund þar sem móðir og barn eru að hittast augliti til auglitis í fyrsta sinn. Sömuleiðis faðir og barn ef hann er viðstaddur. Margir muna í smáatriðum fæðingu barna sinna. Á þessari stundu fara móðir og barn saman í gegnum átök sem gæti kostað annað þeirra eða bæði lífið. Ef faðirinn er viðstaddur er hann einnig að fara í gegnum einstaka lífsreynslu þó lífi hans sé ekki ógnað á sama hátt. Eðli málsins vegna verður öll skynjun ofur-næm og allar tilfinningar verða ofur-sterkar, niður í dýpstu lægðir og upp í hæstu hæðir. Þá er gott að hafa öruggar kringumstæður, hafa aðgang að styrkri leiðsögn og fagmennsku.
Á þessu augnabliki í lífi foreldra og barns er ljósmóðirin í lykilhlutverki. Hún lítur eftir, leiðbeinir og hvetur móðurina (og föðurinn þegar á þarf að halda) í gegnum þessa oft á tíðum yfirþyrmandi reynslu, sem getur vakið vanmátt, ótta og jafnvel skelfingu á köflum. Sérstaklega þegar um fyrsta barn er að ræða eða saga er um áföll eða erfiðleika við fyrri fæðingar. Flest höfum við litið dagsins ljós með aðstoð þessarra mikilvægu kvenna og þeir sem hafa átt börn muna sennilega allir eftir ljósmóðurinni sem tók á móti barninu þeirra. Ljósmæður spila þannig stórt hlutverk í lífi okkar allra.
En hvernig getur þessi mikilvæga stétt sem tók á móti okkur í heiminn verið svo vanvirt og vanmetin að hún þurfi að standa í harðri kjarabaráttu til að fá eðlilega og sjálfsagða viðurkenningu á námi sínu og starfi með sanngjörnum launum.
Líklegasta skýringin er að ljósmæður eru kvennastétt.
Þrátt fyrir að Íslendingar standi framar öðrum þjóðum varðandi jafnrétti þá höfum við alls ekki náð því takmarki að konur og karlar séu metin til jafns þegar kemur að launum. Það er skömm. Umönnunarstörf eru enn að mestu kvennastörf og jafnan verr launuð en karlastörf, og í þeim karlastörfum sem konum hefur fjölgað hafa laun lækkað.
Ég tel að það sem konur hafa gert í gegnum aldirnar hafi verið stórlega vanmetið. Það verður ekki raunverulegt jafnrétti fyrr en kvennastörf verða metin til jafns við hefðbundin karlastörf. Þá verður það jafnverðmætt og eftirsóknarvert að hlúa að börnum eins og það er að höndla með peninga.
Síðustu áratugi hefur verið ört vaxandi vísindaleg þekking á þeim verðmætum sem felast í því að hlúa að börnum. Sem dæmi hefur James Heckman Nóbelsverðlaunahafi í Hagfræði, sýnt fram á það að þjóðfélag fær mest tilbaka fyrir fjárfestingar sem fyrst á ævi einstaklingsins og allra mest með því að byrja á meðgöngunni.
Meðganga, fæðing og fyrstu árin eftir fæðingu barns er gífurlega mikilvægur tími vegna viðkvæms mótunartíma og heilaþroska ungbarnsins. Rannsóknir hafa einnig sýnt að á þessum tíma verður mikil breyting á heila foreldra. Að verða foreldri er eitt mikilvægasta þroskaverkefni lífsins.
Það að skapa fæðandi konum tryggar og góðar aðstæður til að eignast barn sitt stuðlar að velferð og vellíðan nýbakaðra foreldra og barna. Það getur haft alvarlegar afleiðingar ef eitthvað fer úrskeiðis á þessum tíma.
Skotar hafa nýlega bætt við 500 nýjum ljósmæðrum í sína heilbrigðisþjónustu, þeir hafa séð ,,ljósið” varðandi mikilvægi þessarar stéttar.
Það er ekki hægt að leggja nægilega mikla áherslu á það hversu mikilvægt það er að stjórnvöld og okkar góða samfélag standi vörð um þjónustu ljósmæðra, svo þær geti áfram sinnt fegursta og í mínum huga einu mikilvægasta starfi samfélagsins af sinni alkunnu alúð og fagmennsku.
Stjórnvöld og allt hugsandi fólk ætti að sjá sóma sinn í því að krefjast þess að ljósmæður fái viðunandi kjarabætur…..STRAX!
Höfundur er geðlæknir
Skoðun

Valdið yfir sjávarútvegsmálunum
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Lummuleg áform heilbrigðisráðherra
Ragnar Sigurður Kristjánsson skrifar

Hver á að fá súrefnisgrímuna fyrst?
Davíð Bergmann. skrifar

Baráttan um kjör eldra fólks
Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar

Menntamál íslenskra grunnskólabarna hafa verið til umfjöllunar – sem er vel. Miklu verra er tilefnið
Karen Rúnarsdóttir skrifar

Elsku Íslendingar, styðjum saman Grindavík
Dagmar Valsdóttir skrifar

Svigrúm Eydísar á fölskum grunni
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Betri vegur til Þorlákshafnar er samkeppnismál
Ólafur Stephensen skrifar

Óvirðing við lýðræðislegar hefðir, gegn stjórnarskrá, trúnaðarbrot gagnvart kjósendum
Arnar Þór Jónsson skrifar

Lík brennd í Grafarvogi
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Er handahlaup valdeflandi?
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Á jaðrinum með Jesú
Daníel Ágúst Gautason skrifar

Þeir sem verja stórútgerðina – og heimsvaldastefnuna
Karl Héðinn Kristjánsson skrifar

Gervigreindin beisluð
Hanna Kristín Skaftadóttir,Helga Sigrún Harðardóttir skrifar

Kúnstin að vera ósammála sjálfum sér
Heiða Ingimarsdóttir skrifar

Óboðlegt ástand á Landspítala – okkar sjónarhorn
Hildur Jónsdóttir,Einar Freyr Ingason,Þórir Bergsson skrifar

Geislameðferð sem lífsbjörg
Ingibjörg Isaksen skrifar

Þetta eru ekki eðlileg vinnubrögð
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Stöðvum helvíti á jörðu
Birna Þórarinsdóttir,Bjarni Gíslason,Gísli Rafn Ólafsson,Sigríður Schram,Stella Samúelsdóttir,Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar

Hversu mikið er nóg?
Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar

Til þeirra sem fagna
Sigurður Gísli Bond Snorrason skrifar

Að semja er ekki veikleiki – það er forsenda lýðræðis
Elliði Vignisson skrifar

Tekist á um hvort lýðræðið á Íslandi sé virkt eða hvort hefðaréttur sé á völdum
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Sumar og sól – en ekki alltaf sátt í sálinni
Ellen Calmon skrifar

Að flokka hver vinnur og hver tapar
Tryggvi Rúnar Brynjarsson skrifar

Hagur hluthafanna alltaf og undantekningarlaust í forgangi
Jón Kaldal skrifar

Má berja blaðamenn?
Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar

Nýr rektor og 2025 – tímamót í háskólamálum
Ástráður Eysteinsson,Magnús Karl Magnússon,Margrét Helga Ögmundsdóttir,Tinna Laufey Ásgeirsdóttir skrifar

Vonir um vopnahlé eins og hálmstrá
Sveinn Rúnar Hauksson skrifar

Samfélagið innan samfélagsins
Sigríður Svanborgardóttir skrifar