Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar 26. október 2026 07:03 Síðustu dagar Gnarrsins hafa sýnt með óyggjandi hætti að þörf er á vinnustaðasálfræðingi á ríkisstjórnarskrifstofurnar. Hitt opinberast þó, með sífellt skýrari hætti, að þörf er á klínískum sálfræðingi líka, til að greina hið stæka landsbyggðahatur sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur er heltekin af. Áratugum saman hafa 70-90% af útflutningstekjum Íslands komið utan af landi eða vegna auðlinda sem þar eru. Er þetta ekki nóg? Nei, segir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur sem vængstýfir Loftbrúna. Um 92% af heildarafla og 85% aflaverðmætis er landað utan höfuðborgarsvæðisins. Sjávarafurðir voru 38,9% af heildarverðmæti vöruútflutnings árið 2025. Útflutningsverðmæti fiskeldis var 53,4 milljarðar króna sama ár. Er þetta ekki nóg? Nei, segir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur sem ætlar að hækka kílómetragjaldið um 15,9%. Orkan er undirstaða lífsgæða Íslendinga, hún verður til úti á landi. Landsvirkjun framleiðir yfir 70% allrar raforku landsins, og ríkissjóður á 99,9% í fyrirtækinu. Er þetta ekki nóg? Nei, segir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur sem ætlar að setja gjaldið á þyngstu vörubílana upp í um 52 krónur á kílómetra, álögur sem skila sér beint út í verð á vörum og þjónustu, sérstaklega úti á landi. Um 70% ríkisstöðugilda eru á höfuðborgarsvæðinu, þar sem 64% landsmanna búa. Er þetta ekki nóg? Nei, segir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur sem nær tvöfaldaði veiðigjaldið á þorsk. Gjald á þorsk fór úr 26,68 í 50,79 krónur á kíló, sem er 90,4% hækkun, og makríll hækkaði um 151%. Þau 64% landsmanna sem búa á höfuðborgarsvæðinu greiða aðeins um 15% veiðigjaldsins. Ferðaþjónustan á sér stað úti á landi, en verðmætu störfin og stórfyrirtækin í greininni eru á höfuðborgarsvæðinu. Sjávarútvegur, fiskeldi, stangveiði, orkuvinnsla, útflutningur á hrossum, ál- og gagnaver - allt gerist þetta að stærstum hluta úti á landi og stendur undir lífsgæðum og velferð landsmanna allra. Er þetta ekki nóg? Nei, segir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur. Nei. Nei. Nei. Aftur og aftur. Ef þetta er ekki nóg, hvað má þá bjóða ykkur? Svo maður vitni nú bara í besta áramótaskaup sögunnar: Viljiði ekki bara sjá á okkur brjóstin líka? Höfundur er oddviti sveitarstjórnar Húnaþings vestra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Húnaþing vestra Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Sjá meira
Síðustu dagar Gnarrsins hafa sýnt með óyggjandi hætti að þörf er á vinnustaðasálfræðingi á ríkisstjórnarskrifstofurnar. Hitt opinberast þó, með sífellt skýrari hætti, að þörf er á klínískum sálfræðingi líka, til að greina hið stæka landsbyggðahatur sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur er heltekin af. Áratugum saman hafa 70-90% af útflutningstekjum Íslands komið utan af landi eða vegna auðlinda sem þar eru. Er þetta ekki nóg? Nei, segir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur sem vængstýfir Loftbrúna. Um 92% af heildarafla og 85% aflaverðmætis er landað utan höfuðborgarsvæðisins. Sjávarafurðir voru 38,9% af heildarverðmæti vöruútflutnings árið 2025. Útflutningsverðmæti fiskeldis var 53,4 milljarðar króna sama ár. Er þetta ekki nóg? Nei, segir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur sem ætlar að hækka kílómetragjaldið um 15,9%. Orkan er undirstaða lífsgæða Íslendinga, hún verður til úti á landi. Landsvirkjun framleiðir yfir 70% allrar raforku landsins, og ríkissjóður á 99,9% í fyrirtækinu. Er þetta ekki nóg? Nei, segir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur sem ætlar að setja gjaldið á þyngstu vörubílana upp í um 52 krónur á kílómetra, álögur sem skila sér beint út í verð á vörum og þjónustu, sérstaklega úti á landi. Um 70% ríkisstöðugilda eru á höfuðborgarsvæðinu, þar sem 64% landsmanna búa. Er þetta ekki nóg? Nei, segir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur sem nær tvöfaldaði veiðigjaldið á þorsk. Gjald á þorsk fór úr 26,68 í 50,79 krónur á kíló, sem er 90,4% hækkun, og makríll hækkaði um 151%. Þau 64% landsmanna sem búa á höfuðborgarsvæðinu greiða aðeins um 15% veiðigjaldsins. Ferðaþjónustan á sér stað úti á landi, en verðmætu störfin og stórfyrirtækin í greininni eru á höfuðborgarsvæðinu. Sjávarútvegur, fiskeldi, stangveiði, orkuvinnsla, útflutningur á hrossum, ál- og gagnaver - allt gerist þetta að stærstum hluta úti á landi og stendur undir lífsgæðum og velferð landsmanna allra. Er þetta ekki nóg? Nei, segir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur. Nei. Nei. Nei. Aftur og aftur. Ef þetta er ekki nóg, hvað má þá bjóða ykkur? Svo maður vitni nú bara í besta áramótaskaup sögunnar: Viljiði ekki bara sjá á okkur brjóstin líka? Höfundur er oddviti sveitarstjórnar Húnaþings vestra.
I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun
Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson Skoðun
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun
Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson Skoðun