Pia stofnaði danska þjóðarflokkinn árið 1995 auk þess sem hún var formaður flokksins frá stofnun til ársins 2012. Pia er umdeildur stjórnmálamaður og ekki síst vegna framgöngu sinnar í innflytjendamálum og baráttu gegn fjölmenningu og íslam.
Síðan Steingrímur J. Sigfússon, forseti alþingis, tilkynnti um ráðstöfunina í ræðustól á Alþingi hefur borið á mikilli óánægju. Egill Helgason, dagskrárgerðarmaður, fjallaði um ræðumanninn umdeilda á bloggsíðu sinni og sagði Piu varpa skugga á hátíðina. Hún sé stjórnmálamaður af því tagi sem Íslendingar vilji sjá sem minnst af og bætir við að Danir geri okkur lítinn greiða með því að „magna upp þessa sendingu til okkar“.
„Svona færast mörkin til“
Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, varar við þessari þróun. Á Facebooksíðu sinni spyr hún hvar mörkin séu hjá Íslendingum.„Svona færast mörkin til. Rasistar komast í þjóðþing, þeir komast í oddastöðu og þar af leiðandi í ríkisstjórn, þeir verða forsetar þingsins og íslenska þingið býður forseta danska þingsins að ávarpa hið íslenska. Rasisti ávarpar okkur á hátíðarfundi. Rasistar eru orðnir húsum hæfir og við erum samsek.“
Segir Piu líkjast Trump
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar stéttarfélags, segir að það skjóti skökku við að íslenskir stjórnmálamenn fárist yfir framgöngu Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna en finnist í lagi að bjóða Piu til landsins til að flytja ávarp á hátíðarfundi.Íslenskir stjórnmálamenn ætli þannig að „hlýða á einn fremsta verkefnastjóra úr framvarðasveit Evrópska rasisma-og mannhatursverkefnisins í tilefni fullveldisafmælisins en pólitísk meginstraums velgengni Piu hefur blásið innflytjendahöturum og múslimafóbum um alla veröld baráttuanda í brjóst.“

Niðurlægjandi og út í hött að Pia skuli hafa verið valin
Grímur Atlason, tónleikahaldari, var einnig í hópi þeirra sem lögðu orð í belg á samfélagsmiðlum vegna Piu. Í pistli á Facebook segir Grímur að það sé nöturlegt að hugsa til þess að Pia flytji hátíðarræðu vegna 100 ára afmælis fullveldisins. Það sé bæði niðurlægjandi og út í hött að hafa falið hana til verksins.„Hún stendur fyrir allt það sem ég fyrirlít mest í þessum heimi,“ segir Grímur.
Segir Piu vera talskonu fordóma og mannhaturs
Þórunn Ólafsdóttir, handhafi mannréttindaverðlauna Reykjavíkur, skrifaði nokkur tíst um Piu af þessu tilefni. „Á morgun flytur valdamikil talskona fordóma og mannhaturs hátíðarræðu á Þingvöllum. Hvers vegna er verið að gefa svona einstaklingum meira pláss en þeir hafa nú þegar?“ spyr Þórunn.„Nákvæmlega þannig normalíserum við fullkomna óásættanleg viðhorf og hegðun sem við ættum að hafna með öllu.“
Á morgun flytur valdamikil talskona fordóma og mannhaturs hátíðarræðu á Þingvöllum. Hvers vegna er verið að gefa svona einstaklingum meira pláss en þeir hafa nú þegar?
— Þórunn Ólafsdóttir (@Thorunnolafsd) July 17, 2018
Nákvæmlega þannig normalíserum við fullkomlega óásættanleg viðhorf og hegðun sem við ættum að hafna með öllu.

Óskar eftir nánari upplýsingum
Þá sendi Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar stéttarfélags, Steingrími J. Sigfússyni, forseta Alþingis, fyrirspurn um málið. Hann deildi síðan bréfinu með vinum sínum á Facebook.Í bréfinu óskar hann eftir upplýsingum um það hver hefði tekið þá ákvörðun að bjóða Piu hlutverkið og þá óskar hann jafnframt eftir upplýsingum um rökstuðning sem að baki ákvörðuninni liggur.
„Til útskýringar á erindi mínu vil ég koma því á framfæri að Pia Kjærsgaard hefur um langt skeið verið í fararbroddi þeirra stjórnmálaafla sem hafa alið á hatri sundrungu og fordómum meðal borgara í Evrópuríkjum. Kjærsgaard hefur gert einstaklinga með brúnan húðlit og sem uppruna eiga utan Vestur-Evrópu að sérstökum skotspón sínum og hefur flokkur hennar, Danske folkeparti, beitt sér svo markvisst í þeim efnum að eftirtekt hefur vakið um allan heim.“
Viðar spyr hvaða skilaboðum sé verið að koma áfram, með þessu, til Íslendinga af erlendum uppruna og barna þeirra.