Berjast um ösku leiðtogans Stefán Ó. Jónsson skrifar 10. júlí 2018 08:23 Shoko Asahara sést hér fyrir miðju ásamt börnum sínum og nokkrum meðlimum safnaðarins. Vísir/epa
Aðstandendur Shoko Ashara, sértrúarsafnaðarleiðtogans sem tekinn var af lífi í síðustu viku, berjast nú um hver þeirra skuli fá að eiga brenndar líkamsleifar hans. Aska Ashara er geymd í fangelsinu í Tókýó þar sem hann var hengdur ásamt sex meðlimum safnaðarins Aum Shinrikyo. Þeim var gefið að sök að hafa staðið á bakvið mannskæða eiturefnaárás í neðanjarðarlestarkerfi borgarinnar árið 1995. Stjórnendur fangelsins óttast nú að aðstandendur Ashara kunni að reyna að brjótast inn í fangelsið og stela öskunni í einhvers konar hefndaraðgerðum fyrir aftökuna. Fangelsið hefur verið undir miklu eftirliti síðustu daga á meðan stjórnendur þess hafa verið að ráða ráðum sínum. Dóttir leiðtogans segir að hann hafi lofað sér að hún fengi að eiga ösku hans að honum látnum. Hún er sögð í þarlendum miðlum hafa sagt skilið við söfnuðinn og eigi þar af leiðandi í litlu og stirðu sambandi við móður sína og systkini. Þau hafa öll farið formlega fram á að fá forræði yfir öskunni. Fjölskyldan gefur lítið fyrir yfirlýsingar dótturinnar, enda hafi Ashara ekki verið í andlegu ástandi til að gefa nein loforð.Sjá einnig: Meðlimir sértrúarsafnaðar teknir af lífiÖnnur dóttir mannsins sagði þannig á bloggsíðu sinni að hann hafi undir það síðasta átt erfitt með að tjá sig. Hann hafi verið „brotinn einstaklingur“ og því ætti ekki að taka meint loforð hans til dóttur sinnar alvarlega. Sértrúarsöfnuðurinn var bannaður í Japan eftir fyrrnefnda árás í mars árið 1995, sem dró 13 manns til dauða og særði þúsundir. Hópurinn kom pokum fullum af taugaefninu saríngasi fyrir í neðanjarðarlestum. Eftir nokkrar mínútur byrjuðu pokarnir að leka og gasið fyllti klefa lestanna. Farþegarnir fundu þá til særinda í augum og öndunarfærum áður en þeir féllu til jarðar. Flestir köstuðu upp og aðrir köfnuðu, blinduðust eða lömuðust. Söfnuðurinn leit dagsins ljós á níunda áratugnum og reiddi sig í fyrstu á kenningar úr hindúisma og búddisma. Eftir því sem árin liðu innleiddi hann fleiri þætti úr heimsendaspám kristninnar í kennisetningar sínar. Leiðtogi safnaðarins, títtnefndur Shoko Ashara, leit á sig sem Jesú Krist endurfæddan og þann fyrst sem telja mætti sem „uppljómaðan“ frá því að Búdda var og hét. Þegar mest lét töldu meðlimir safnaðarins nokkra tugi þúsunda. Hann hvarf hins vegar af sjónarsviðinu eftir árásina árið 1995 og söfnuðurinn skipti að endingu um nafn.
Tengdar fréttir Meðlimir sértrúarsafnaðar teknir af lífi Sjö meðlimir japanska sértrúarsafnaðarins Aum Shinrikyo hafa verið teknir af lífi. 6. júlí 2018 06:23 Mest lesið Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Innlent Starmer segir af sér Erlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Innlent Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Innlent Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Innlent Fleiri fréttir Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Sjá meira
Meðlimir sértrúarsafnaðar teknir af lífi Sjö meðlimir japanska sértrúarsafnaðarins Aum Shinrikyo hafa verið teknir af lífi. 6. júlí 2018 06:23