Lögregluþjónar ekki ákærðir fyrir að skjóta Thurman Blevins Samúel Karl Ólason skrifar 30. júlí 2018 16:46 Thurman Blevins var 31 árs gamall. Vísir/AP
Saksóknarar í Minnesota munu ekki ákæra lögregluþjóna sem skutu hinn 31 árs gamla Thurman Blevins til bana í síðasta mánuði. Saksóknarinn Mike Freeman tilkynnti þetta í dag og sagði lögregluþjónana hafa verið í rétti. Blevins hefði ógnað þeim og samfélaginu. Blevins flúði frá lögregluþjónum með hlaðið skotvopn, eftir að þeim hafði borist tilkynning um ölvaðan mann sem væri að skjóta út í loftið. Þegar hann tók byssuna úr vasa sínum, var hann skotinn til bana.Sjá einnig: Birta myndband af umdeildu banaskoti Freeman reyndi að tilkynna þessa ákvörðun á blaðamannafundi í Minneapolis en þurfti frá að hverfa þar sem íbúar görguðu mikið á hann. Í kjölfar þess sendi hann frá sér tilkynningu. Yfirvöld borgarinnar birtu í gær myndbönd úr vestismyndavélum lögregluþjónanna eftir mótmæli í borginni en yfirvöld vildu ekki birta þau fyrr en búið væri að ræða við helstu vitni málsins. Birt voru myndbönd úr vestum beggja lögregluþjónanna og eitt myndband til viðbótar sem sérfræðingar höfðu farið yfir. Búið er að hægja á því á völdum stöðum og skerpa það. Þegar lögregluþjónarnir nálguðust hann tók annar þeirra eftir því að hann væri vopnaður. þeir skipuðu honum að stoppa og hótuðu því að skjóta hann. Í fyrstu var hann með byssu sína í belti sínu en þegar hann var skotinn, hélt hann á byssunni.
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Fleiri fréttir Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Sjá meira