Háhyrningurinn losað sig við kálfshræið Stefán Ó. Jónsson skrifar 13. ágúst 2018 07:45 J35 bar kálfinn á trjónunni í 17 daga hið minnsta. Vísir/AP
Vísindamenn segja að háhyrningur, sem bar dauðan kálf sinn langa leið í rúmlega tveir vikur, hafi sagt skilið við hræ kálfsins. Málið vakti heimsathygli, enda þótti mörgum það vera lýsandi fyrir hvers megnug móðurástin getur verið. Vísindamenn í hvalarannsóknarstöð í Washington-fylki segjast hafa séð til háhyrningsins á laxveiðum um helgina, án hræsins. Kálfurinn er talinn hafa drepist skömmu eftir að hann kom í heiminn þann 24. júlí síðastliðinn. Háhyrningurinn hafi því skilið við hræ kálfsins eftir hið minnsta 17 daga, þegar það var byrjað að rotna. Vísindamennirnir eru á vef Guardian sagðir fagna því að dýrið sé aftur farið að hegða sér „með eðlilegum hætti.“ Þeir segja að rúmlega 3 ár séu liðin síðan að háhyrningur bar heilbrigt afkvæmi á þessum slóðum, skammt frá Vancouver-eyju við vesturströnd Bandaríkjanna og Kanada. Fjörutíu háhyrningar af þessari fágætu tegund hafi komið í heiminn á síðastliðnum 20 árum. Á sama tíma hafi 72 dýr drepist. Nú er svo komið að aðeins 75 skepnur af þessari háhyrningategund eru taldar á lífi í náttúrunni. Til þess að sporna við frekari hnignun stofnsins segja vísindamenn nauðsynlegt að stuðla að fjölgun villtra laxa í norðausturhluta Kyrrahafsins, þar sem J35 heldur sig.
Dýr Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Sjá meira