Tugir slösuðust á spænskri tónlistarhátíð Stefán Ó. Jónsson skrifar 13. ágúst 2018 06:22 Hið minnsta fjórir eru alvarlega slasaðir. Twitter
Tugir tónleikagesta eru slasaðir eftir að viðarbryggja hrundi í borginni Vigo á vesturströnd Spánar. Bryggjan er sögð hafa verið drekkhlaðin af fólki og svo virðist sem hún hafi gefið sig undan þyngd mannfjöldans. Fólkið hafði verið að njóta rapptónleika sem voru hluti af tónlistarhátíðinni O Marisquiño, sem fram fór í borginni um helgina.Breska ríkisútvarpið segir að rúmlega 130 einstaklingar hafi verið fluttir á sjúkrahús til aðhlynningar, sumir vegna líkamlegra meiðsla en aðrir leituðu sér áfallahjálpar. Ekki er vitað til þess að neinn hafi látið lífið í slysinu. Vitni lýsa ringulreiðinni sem skapaðist þegar bryggjan féll í sjóinn og hundruð tónleikagesta reyndu að klöngrast upp á þurrt land. Fjöldi björgunarfólks var sendur á vettvang, þar á meðal voru kafarar sem tryggðu að enginn hefði festst undir bryggjunni. Rapparinn Rels B, sem staðið hafði á sviðinu þegar slysið varð, hvatti alla þá sem höfðu áhyggjur af aðstandendum sínum til að setja sig í samband við neyðarþjónustu tónlistarhátíðarinnar.
Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Fleiri fréttir Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Sjá meira