Harka færist í hörpudisksveiðar Stefán Ó. Jónsson skrifar 29. ágúst 2018 07:45 Bátar franskra og enskra sjómanna skella hér saman á Ermasundi. Skjáskot
Franskir sjómenn eru bornir þungum sökum af enskum starfsbræðrum þeirra á Ermasundi. Þeir frönsku eru sagðir hafa hreytt fúkyrðum í enska sjómenn og grýtt þá með steinum og jafnvel reyksprengjum þegar fley þeirra mætust á dögunum á hörpudisksmiðum undan ströndum Englands og Frakklands. Átökin milli sjómannanna eru sögð hafa átt sér stað um 22 kílómetrum undan ströndum Normandí. Bretar hafa leyfi til að veiða hörpudiska á þessum slóðum en nærvera þeirra hefur reitt Frakka til reiði sem saka þá um að ganga á skelfiskstofninn. Breskir sjómenn krefjast nú ríkisverndar á meðan Frakkar harma hve mikið hörpudisksstofninn hefur rýrnað. Um 40 frönsk fiskveiðiskip komu saman á mánudag til að mótmæla því sem þeir kalla rányrkju Breta og endaði rifrildið með því að einhverjir bátanna skullu saman og nokkrir bátar skemmdust. Einungis 5 bresk skip voru á staðnum og flúðu Bretar svæðið að endingu. Hinir bresku sögðu við heimkomuna að þeir hefðu verið umkringdir og að grjóti og járni hefði verið kastað að þeim. Hér að neðan má sjá myndband sem breska ríkisútvarpið tók saman um málið
Mest lesið Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent „Þá er bara búið að skemma MR“ Innlent Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Innlent Við öllu búin en vonar að árásunum fari að linna Innlent D-listinn nærri því sá sami en óljóst með Elliða Innlent Davíð hafi verið hrókur alls fagnaðar og harður í horn að taka Innlent Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Innlent Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Innlent Fyrsti dagur samræmdra prófa í fimm ár Innlent Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Innlent Fleiri fréttir Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Sjá meira