Greinina skrifar nafnlaus, háttsettur embættismaður í Hvíta húsinu en hann lýsir því hvernig hann ásamt öðrum háttsettum embættismönnum í ríkisstjórn Trump vinna á bak við tjöldin að því að stöðva hluta af stefnumálum og hemja verstu hvatir hans.
Á Twitter í gær velti Trump því upp hvort að skrif embættismannsins væru landráð og krafðist þess að New York Times gæfi upp nafn mannsins. Spurði hann hvort að þessi embættismaður væri í raun eða hvort blaðið væri hreinlega að búa hann til.
„Ef að þessi huglausa manneskja er til þá verður Times að gefa stjórnvöldum nafn hennar vegna öryggis ríkisins,“ skrifaði Trump á Twitter.
TREASON?
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) September 5, 2018
Spáði því að New York Times og CNN myndu fara á hausinn
Þá tjáði Trump sig um einnig um málið í Hvíta húsinu. Þar spáði hann því að þegar tímabili hans á forsetastóli lyki, sem væri vonandi eftir sex og hálft ár, væru bæði New York Times og CNN farin á hausinn vegna þess að þau myndu ekki lengur „hafa neitt til að skrifa um.“„Þeim líkar ekki við Donald Trump og mér líkar ekki við þá því þeir eru óheiðarlegir,“ sagði forsetinn um fjölmiðlana tvo.
Um leið og nafnlausa greinin birtist fóru af stað sögusagnir á samfélagsmiðlum, á meðal fjölmiðlamanna og innan Hvíta hússins um hver embættismaðurinn gæti verið og reyndu einhverjir að greina orðalagið til að finna einhverjar vísbendingar.
New York Times hefur hins vegar ekkert gefið upp um hver embættismaðurinn er og hvort hann vinni í Hvíta húsinu og/eða hvort hann hafi beinan aðgang að Trump.
The Failing New York Times! pic.twitter.com/SHsXvYKpBf
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) September 5, 2018
Hafði samband við blaðið í gegnum þriðja aðila
Í frétt á vef Guardian er vísað í Brian Stelter, fréttamann á CNN, sem greindi frá því að höfundur hefði notað þriðja aðila fyrir nokkrum dögum til þess að hafa samband við Jim Dao, ritstjóra aðsendra greina hjá New York Times.Stelter sagði að Dao hefði sagt sér að einungis örfáir innan ritstjórnar vissu hver embættismaðurinn væri og að ýmsar varúðarráðstafanir hefðu verið gerðar til að koma í veg fyrir að nafn hans yrði opinberað.
Grein embættismannsins er ansi sláandi en hann fullyrðir meðal annars að ríkisstjórn Trump hafi jafnvel íhugað að koma honum frá. Þá staðhæfir hann að Trump standi frammi fyrir ógn við forsetatíð hans sem enginn annar leiðtogi Bandaríkjanna hefur upplifað í seinni tíð.
Rannsóknin á því hvort að forsetaframboð hans hafi átt í samráði við rússneska útsendara sé ekki aðeins ástæðan eða að flokkur hans gæti misst meirihluta sinn í neðri deild bandaríska þingsins.
Does the so-called “Senior Administration Official” really exist, or is it just the Failing New York Times with another phony source? If the GUTLESS anonymous person does indeed exist, the Times must, for National Security purposes, turn him/her over to government at once!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) September 5, 2018