Sturridge kom inn í liðið fyrir Brasilíumanninn Roberto Firmino sem var að jafna sig eftir augnapot Jan um helgina. Firmino kom síðan inná fyrir Sturridge og skoraði sigurmark Liverpool í leiknum.
Innkoma Daniel Sturridge í byrjunarliðið í gær er aftur á móti enn eitt dæmið um þá miklu breidd sem býr nú í Liverpool-liðinu.
Stephen Warnock, nú knattspyrnuspekingur hjá BBC og fyrrverandi leikmaður Liverpool, ræddi leikmanninn Daniel Sturridge á BBC Radio 5 live.
Warnock er á því að Daniel Sturridge verði að fá stórt hlutverk á tímabilinu ætli Liverpool að berjast um titla á mörgum vígstöðum.
„Hann er kannski ekki eins vinnusamur án bolta og Roberto Firmino en hann kemur um leið með eitthvað annað inn í liðið. Þegar hann fær boltann þá geta hlutirnir gerst alveg eins og þegar Firmino fær hann,“ sagði Stephen Warnock.
Is Daniel Sturridge a £50m player?
Stephen Warnock thinks so.
Read: https://t.co/hVGFAKVYk0pic.twitter.com/5aVFST8cwC
— BBC Sport (@BBCSport) September 19, 2018
Daniel Sturridge hefur misst mikið úr á síðustu tímabilum vegna meiðsla og margir voru búnir að afskrifa hann eða bjuggust við því að Jürgen Klopp myndi selja hann í sumar. Sturridge átti hins vegar frábært undirbúningstímabil og hefur nú stimplað sig inn á tímabilinu sjálfu.
„Jürgen Klopp vildi sjá á undirbúningstímabilinu hvort Daniel væri heill og hungraður og hugarfar hans var hárrétt. Ég sá mikið af leikjunum á undirbúningstímabilinu og Daniel Sturridge spilaði mjög vel,“ sagði Warnock.
„Það er þess vegna að Klopp gaf honum hans fyrsta byrjunarliðsleik síðan í nóvember 2017. Þú lítur ekkert framhjá Daniel þegar hann er heill og klár í slaginn. Við erum að tala um 50 milljóna punda framherja því hann er mögulega heimsklassa framherji,“ sagði Warnock.
Það má sjá markið hans á móti PSG í gær hér fyrir neðan.
„Salah sem dæmi lítur ekki út fyrir að vera 100 prósent núna. Hann virkaði þreyttur síðustu 20 til 25 mínúturnar á móti PSG. Þar var því tækifæri fyrir Xherdan Shaqiri að koma inn og sýna sig og sanna,“ sagði Warnock.
„Leikmennirnir sem Liverpool fékk í sumar er stór hluti ástæðunnar að ég tel að liðið geti gert betur í Meistaradeildinni en í fyrra þegar þeir urðu í öðru sæti. Leikmennirnir sem voru í fyrra geta nú litið í kringum sig í klefanum og séð að liðið er með betri leikmenn en í fyrra,“ sagði Warnock.
„Sturridge er auðvitað ekki nýr leikmaður en það er svo sjaldgæft að hann sé heill og í formi að það er alveg eins og hann sé nýr leikmaður. Klopp tók vel á móti honum með stóru faðmlagi á hliðarlínunni og hrósaði honum síðan mikið á blaðamannafundinum eftir leik. Allt þetta mun gefa Sturridge mikið sjálfstraust fyrir framhaldið,“ sagði Warnock en það má lesa allan pistilinn hér.