Tíu ára á batavegi eftir geitungaárás, fall úr tré og grillspjót í gegnum höfuðið Kristín Ólafsdóttir skrifar 12. september 2018 22:47 Spjótið fór í gegnum kinn drengsins og út um hnakkann. Vísir/AP
Tíu ára drengur frá Missouri-ríki í Bandaríkjunum er nú á batavegi eftir að hafa orðið fyrir árás geitunga, dottið úr tré og hafnað á grillspjóti, sem stakkst í gegnum höfuðið á honum. Í umfjöllun héraðsblaðsins Kansas City Star segir að Xavier Cunningham hafi sloppið ótrúlega vel úr slysinu en grillspjótið sneiddi hjá auga hans, heila, mænu og helstu æðum. Cunningham var að leika sér í trjákofa við heimili sitt í Harrisonville í Missouri seinni partinn á sunnudag þegar slysið varð. Sveimur af geitungum gerði skyndilega atlögu að honum uppi í trénu og í óðagotinu féll drengurinn á jörðina. Þar lenti hann á áðurnefndu grillspjóti, sem fór inn um vinstri kinn hans og út um hnakkann.Xavier Cunningham er á batavegi.Vísir/APMóðir Cunningham, Gabrielle Miller, segir í samtali við Kansas City Star að hann hafi þegar verið fluttur á sjúkrahús í Kansas. Þá segir hún að strákurinn hafi fullyrt við sig að hann væri að deyja á leiðinni á spítalann. Læknir á sjúkrahúsinu tjáir blaðinu að það sé kraftaverki líkast að spjótið hafi ekki skaðað Cunningham meira en raunin varð. Þá hefur spjótið verið fjarlægt úr höfði Cunningham og búist er við því að hann nái sér að fullu.
Bandaríkin Mest lesið Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Fleiri fréttir Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sjá meira