Fella niður 26 flugferðir Agnar Már Másson skrifar 23. september 2026 00:17 Flugvirkjar boða ótímabundið verkfall frá og með deginum í dag, 23. september. Vilhelm Icelandair hefur aflýst öllum brottförum frá Keflavík og Reykjavík á miðvikudagsmorgun, í dag, eftir að verkfall flugvirkja hófst á miðnætti. Um er að ræða 26 flugferðir frá Keflavík til Evrópu og til baka auk fimm flugferða innanlands frá Reykjavík og til baka.
Icelandair greinir frá þessu í tilkynningu en Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, staðfestir við Vísi að verkfallsaðgerðir flugvirkja séu hafnar. Flugfélagið hafði þegar boðað aflýsingar ef af verkfallinu yrði. „Samtals hefur þessi aðgerð áhrif á hátt í 5.500 farþega. Félagið vinnur nú hörðum höndum að því að endurbóka farþega og hvetur fólk til að fylgjast vel með og tryggja að samskiptaupplýsingar séu réttar,“ segir í tilkynningu flugfélagsins. „Í kjölfarið verða ákvarðanir teknar skref fyrir skref eftir því sem fram vindur, en alltaf með nægilegum fyrirvara þannig að farþegum sé ekki stefnt út á flugvöll að tilefnislausu, þ.e. með að minnsta kosti 4-6 klst. fyrirvara. Að sama skapi verður tímabil sveigjanlegra endurbókana uppfært eftir því sem staðan þróast,“ segir enn fremur í tilkynningu Icelandair. Kjaraviðræðum Icelandair við flugvirkja hefur lítið sem ekkert miðað fram í dag en þeir hafa hótað ótímabundnu verkfalli. Óformleg samtöl hafa verið í gangi í kjaradeilu flugvirkja og Icelandair í dag þó að engir formlegir samningafundir hafi verið boðaðir. Icelandair hafnaði í gær boði Flugvirkjafélags Íslands um að fresta verkfallinu um sjö sólarhringa. Flugvirkjafélagið sagði frestinn eiga að gefa aðilum tíma til að vinna með innanhústillögu ríkissáttasemjara, tillögu að samkomulagi sem hann hafi lagt fram um helgina. Flugfélagið sagði aftur á móti of seint að afstýra því tjóni sem verkfallsboðunin hefði þegar valdið enda hefðu þrjú þúsund manns þegar fært bókanir sínar vegna boðaðra aðgerða. Þegar fréttastofa ræddi við ríkissáttasemjara fyrr í kvöld höfðu samtölin ekkert þokast fram. „Nei, það er ekkert sem hægt er að greina frá,“ sagði Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari upp úr klukkan 21 í kvöld. Flugvirkjafélag Íslands vill meina að félagsmenn sínir hafi dregist aftur úr sambærilegum stéttum í launum eftir kjaraskerðingu í heimsfaraldrinum. Þeir hafa sagt deiluna við Icelandair snúast einnig um vaktir, verktöku og framtíð starfa hér á landi.
Kjaradeila Icelandair og flugvirkja 2026 Flug Icelandair Kjaramál Keflavíkurflugvöllur Reykjavíkurflugvöllur Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira