Skildi símann eftir á ströndinni og gekk í hafið Henry Birgir Gunnarsson skrifar 31. október 2018 13:00 Nade í leik með Sheff. Utd. vísir/getty
Sífellt fleiri knattspyrnumenn á Bretlandseyjum stíga nú fram og greina frá baráttu sinni við þunglyndi. Sá nýjasti reyndi að fyrirfara sér fyrir fjórum árum. Sá heitir Christian Nade og spilaði með Hearts, Raith Rovers, Sheff. Utd og Dumbarton á ferlinum. Hann barðist lengi við þunglyndi. „Ég vissi að þessi tilfinning væri ekki eðlileg og í dag veit ég að þetta var þunglyndi sem ég barðist við allan tímann,“ segir Nade og rifjar upp daginn örlagaríka er hann ákvað að binda enda á líf sitt. „Ég var mjög einmana þetta kvöld. Þurfti að tala við einhvern en vildi ekki trufla fjölskylduna mína. Ég vildi ekki vera baggi á öðrum lengur og ákvað bara að binda enda á þetta. Þetta var ekki skipulagt. Þetta var bara eitthvað sem gerðist þetta kvöld. „Ég var á mjög dimmum stað og fór út á strönd nálægt heimili mínu. Ég sendi sms á fjölskyldumeðlimi þar sem ég reyndi að útskýra mitt mál. Bað þau að fyrirgefa mér og sagðist elska þau. Ég skildi svo símann eftir á ströndinni og gekk í hafið. „Ég var mjög lengi út í. Svo heyrði ég í einhverjum og fannst einhver taka í öxlina á mér. Það var samt enginn þarna. Ég sá samt að lokum að vinur minn var á ströndinni. Ég labbaði þá til baka og fór upp í sjúkrabíl. Bróðir minn hafði haft samband við þennan vin minn og hann fann mig. „Ég skammaðist mín er ég sá vininn. Að ég liti aumingjalega út í hans augum. Hann leit upp til mín. Það vill enginn líta þannig út. Við ræddum þetta aldrei aftur fyrr en nú.“Nánar má lesa um Nade hér. Fólk með sjálfsvígshugsanir er minnt á Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, og netspjallið. Þjálfaðir og reynslumiklir sjálfboðaliðar á öllum aldri svara þeim símtölum og spjöllum sem berast. Fullum trúnaði er heitið. Nánari upplýsingar hér.
Enski boltinn Mest lesið Mainoo tryggði sigur eftir að United gaf tvö mörk Enski boltinn Læti í göngunum og Hermann sakaður um að slá til KR-ings Íslenski boltinn Ferguson fluttur á spítala Enski boltinn „Eins og stúdentsprófin í MR“ Íslenski boltinn Golfsveifla Sigmundar Davíðs heldur hægri sinnuð Golf „Það fer í taugarnar á mér“ Íslenski boltinn Isak aftur meiddur Enski boltinn Fullkomnuðu endurkomuna og hentu Boston út Körfubolti Valur - KR 1-4 | Grýlan dauð Íslenski boltinn Eyjakonan lagði Sveindísi Fótbolti Fleiri fréttir Ferguson fluttur á spítala Rúlluðu Palace upp og komnir í Evrópusæti Manchester United - Liverpool | Barist um þriðja sætið Isak aftur meiddur Sjáðu öll mörkin úr enska boltanum: Gyökeres og Saka í banastuði fyrir Skytturnar Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Benóný lauk deildinni á marki og fer í umspilið Skytturnar með sex stiga forystu á toppnum Tap West Ham gefur Tottenham von Hollywood-liðið missir af umspili og Ipswich í ensku úrvalsdeildina Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Færði tíðindi af Salah á blaðamannafundi í morgun Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Sjá meira