Sendi skilaboð á WhatsApp rétt áður en hann var myrtur Henry Birgir Gunnarsson skrifar 5. nóvember 2018 15:00 Daniel Correa var 24 ára gamall. vísir/getty
Morðið hrikalega á leikmanni brasilíska liðsins Sao Paulo, Daniel Correa, hefur tekið nýja stefnu eftir að morðinginn sagði frá ástæðu þess að hann hefði myrt Correa. Sá heitir Edson Brittes Jr. og er viðskiptamaður. Hann segist hafa fundið Correa upp í rúmi hjá eiginkonu sinni sem hafi ætlað að nauðga henni. „Ég opna hurðina. Hann er ofan á henni og hún öskrandi á hjálp. Það sem ég gerði í kjölfarið er eitthvað sem allir menn hefðu gert fyrir konurnar í Brasilíu,“ sagði Brittes Jr. Þetta átti sér stað í 18 ára afmælispartíi dóttur Brittes. Öll fjölskyldan hefur verið hneppt í gæsluvarðhald í mánuð. Lík Correa fannst illa leikið. Það var næstum búið að afhöfða leikmanninn og kynfæri hans voru sundurskorin. Nú hefur komið í ljós að Correa hafði sent vini sínum myndir og skilaboð á WhatsApp kvöldið örlagaríka. Þar liggur hann upp í rúmi hjá eiginkonu Brittes sem er sofandi. Í skilaboðunum segist hann ætla að sænga hjá móður afmælisbarnsins. Vinur hans varar hann við því að láta verða af þeirri fyrirætlan. Correa virðist vera sama og kveður. Það var í síðasta sinn sem hann skrifaði í appið. Myndirnar og skilaboðin má sjá hér.
Fótbolti Tengdar fréttir Lík brasilísks úrvalsdeildarleikmanns fannst nærri afhöfðað Brasilíski knattspyrnumaðurinn Daniel Correa Freitas fannst látinn í bænum Sao Jose dos Pinhais í suðurhluta landsins á laugardagskvöld. 29. október 2018 22:59 Mest lesið Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Enski boltinn Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Fleiri fréttir Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Myndasyrpa: Sara Björk snýr heim Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Markaveisla í Lengjudeildinni Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar „Markmiðinu er náð“ Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Aron Einar heim í Þorpið? Náðu miðum á HM án þess að borga fyrir þá Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Lið Íslands gegn Úkraínu: Thelma, Sandra og Emilía fremstar Sjá meira
Lík brasilísks úrvalsdeildarleikmanns fannst nærri afhöfðað Brasilíski knattspyrnumaðurinn Daniel Correa Freitas fannst látinn í bænum Sao Jose dos Pinhais í suðurhluta landsins á laugardagskvöld. 29. október 2018 22:59