Mörgum þykir þessi stytta af uglu of dónaleg Birgir Olgeirsson skrifar 15. nóvember 2018 23:07 Um það er deilt hvort prýði sé af þessari styttu í Kikinda. Kikinda
Stytta í Serbíu hefur farið fyrir brjóstið á mörgum því hún þykir mun frekar svipa til reðurs en uglu. Styttunni var ætlað að festa bæinn Kikinda í sessi sem uglubæ en hefur orðið að hinu mesta fjaðrafoki sem hefur vakið mun meiri athygli en uglurnar gerðu áður. Þúsundir fuglaskoðara flykkjast til Kikinda á hverjum vetri til að virða fyrir sér heimsins stærsta stofn eyrugla. Bærinn, sem er nærri landamærum Serbíu og Rúmeníu, hefur þó ratað í sviðsljós notenda samfélagsmiðla vegna styttu sem er ætlað að festa Kikinda í sessi sem uglubæinn mikla. Styttan á að vera af uglu en margir eru þeirrar skoðunar að hún sé mun líkari reðri. Mótmælendur eru á því að ílangt form leirstyttunnar sé dónalegt og krefjast þess að hún verði fjarlægð.Fjölmiðlum ytra hefur gengið erfiðlega að fá myndhöggvarann sem gerði styttuna til að tjá sig en hann sagði við héraðsmiðla í síðustu viku að hann væri reiðubúinn til að gera nýja styttu. Bæjaryfirvöld í Kikinda hafa neitað að tjá sig en Zeljko Bodrozic, ritstjóri bæjarblaðs Kikinda, sagði að halda ætti í styttuna því að hún hefði náð að vekja svo mikla athygli á bænum, sem er ekki lengur bara þekktur fyrir uglur.
Dýr Evrópa Rúmenía Styttur og útilistaverk Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Skakkur á rafskútu Innlent Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Innlent Fleiri fréttir Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Sjá meira