Um helgina tilkynnti Trump að stjórnvöld í Peking ætluðu sér að „lækka og afnema“ tollasem þau hafa til þessa lagt á innfluttar, bandarískar bifreiðar. Tollarnir hafa numið um 40 prósentum af söluandvirði bílanna. Trump og Xi Jinping, forseti Kína, snæddu saman á dögunum á fundi G20-ríkjanna, þar sem ákveðið var að ríkin myndu hækka ekki tolla hvert á annað í 90 daga, til að liðka fyrir viðræðum.
Þá sagði Trump einnig að yfirvöld í Kína hefðu samþykkt að kaupa mikið magn landbúnaðarvarnings af Bandaríkjunum. Kínversk yfirvöld vildu þó ekki staðfesta eitt né neitt af því sem Trump sagði. Svo virðist sem að Trump hafi ef til vill farið fram úr sér um helgina en í röð tísta í dag sagði Trump að viðræður á milli ríkjanna væru hafnar til þess að sjá hvort hægt væri að gera einhvers konar samning á milli ríkjanna.
„Ef ekki þá er gott að muna að ég er tollamaður. Þegar fólk eða ríki vilja koma hingað og stela okkar mikla ríkidæmi þá vil ég að þau þurfi að borga fyrir það. Það mun alltaf vera besta leiðin til þess að hámarka efnahagslegt vald okkar,“ skrifaði Trump á Twitter. Þá sagði hann líklegt að framlengja þyrfti 90 daga frestin sem ákveðinn var á fundin forsetanna.
The negotiations with China have already started. Unless extended, they will end 90 days from the date of our wonderful and very warm dinner with President Xi in Argentina. Bob Lighthizer will be working closely with Steve Mnuchin, Larry Kudlow, Wilbur Ross and Peter Navarro.....
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) December 4, 2018
......on seeing whether or not a REAL deal with China is actually possible. If it is, we will get it done. China is supposed to start buying Agricultural product and more immediately. President Xi and I want this deal to happen, and it probably will. But if not remember,......
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) December 4, 2018
....I am a Tariff Man. When people or countries come in to raid the great wealth of our Nation, I want them to pay for the privilege of doing so. It will always be the best way to max out our economic power. We are right now taking in $billions in Tariffs. MAKE AMERICA RICH AGAINSvo virðist því sem að Trump sé að hóta því að háir tollar verði lagðir á kínverskan varning takist ekki að ná samningum á milli ríkjanna tveggja. Í frétt Washington Post segir einnig að embættismenn innan Hvíta hússins hafi reynt að draga úr væntingum yfir mögulegum samningi ríkjanna tveggja.
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) December 4, 2018
Markaðir í Bandaríkjunum hafa ekki tekið þessum fregnum vel en eftir að hafa hækkað á mánudag vegna fregna af mögulegum samningi ríkjanna tveggja hafa helstu vísitölur í Bandaríkjunum lækkað. Dow Jones og Nasdaq féllu til dæmis um þrjú prósent í dag vegna tíðinda dagsins.
Trump virðist þó vera hvergi banginn og segist hann vera vongóður um að samningar takist á milli ríkjanna.
„Látum samningaviðræðurnar hefjat. GERUM BANDARÍKIN FRÁBÆR Á NÝ!,“ skrifaði Trump á Twitter.
.....But if a fair deal is able to be made with China, one that does all of the many things we know must be finally done, I will happily sign. Let the negotiations begin. MAKE AMERICA GREAT AGAIN!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) December 4, 2018