Raunar voru aðeins tvö sæti laus fyrir lokaumferðina á sunndag en í henni náðu Indianapolis Colts og ríkjandi Super Bowl-meistararnir í Philadelphia að tryggja sér síðustu sætin í úrslitakeppninni sem í boði voru.
Það var þó annað í húfi, svo sem hvaða lið fengu heimavallarrétt í úrslitakeppninni og hvaða lið sitja hjá í fyrstu umferðinni. Efstu liðin í báðum deildum, Ameríkudeildinni og Þjóðardeildinni, héldu þó velli þar sem öll unnu sína leiki um helgina.
Þjóðardeildin (NFC)

Chicago hafði að litlu að keppa. Liðið var öruggt með þriðja sæti deildarinnar en gat skotist upp í annað sætið (og fengið frí í fyrstu umferð úrslitakeppninnar) með sigri ef LA Rams hefði tapað fyrir San Francisco 49ers. Rams vann hins vegar þann leik með yfirburðum.
Minnesota komst alla leið í úrslit Þjóðadeildarinnar í fyrra (þar sem liðið tapaði fyrir Philadelphia Eagles) en tímabilið í ár hefur verið vonbrigði. Samið var við leikstjórnandann Kirk Cousins fyrir háar fjárhæðir fyrir tímabilið en hann stóð ekki undir væntingum, allra síst í leiknum gegn Chicago þar sem sókn Minnesota komst aldrei í gang.
Svo fór að Minnesota tapaði fyrir Chicago, 24-10, og náði aðeins 185 sóknarjördum í leiknum. Á sama tíma náði Philadelphia Eagles að vinna Washington Redskins örugglega, 24-0, þrátt fyrir að aðalleikstjórnadinn Carson Wentz sé enn frá vegna meiðsla.
Nick Foles leysti Wentz af hólmi og gerði það vel, alveg eins og hann gerði á síðasta tímabili er Wentz sleit krossband í hné. Foles fór þá liðið með alla leið í Super Bowl þar sem öskubuskuævintýri hans endaði með ótrúlegum sigri. Hver veit nema að Foles eigi annað eins ævintýrum í vændum nú?
New Orleans Saints var öruggt með efsta sæti deildarinnar fyrir umferðina og fær þar með heimavallarrétt í úrslitakeppni Þjóðadeildarinnar. Saints og LA Rams unnu bæði þrettán leiki og höfnuðu í efstu tveimur sætunum. Þau sitja því hjá í fyrstu umferðinni.
Ameríkudeildin (AFC)

Patriots og Houston Texans áttu bæði möguleika á öðru sætinu og þar með fá frí í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Sagan sýnir að það skiptir Patriots máli en leikstjórnandinn Tom Brady hefur átta sinnum farið með liðið í Super Bowl en í öll átta skiptin hefur liðið fengið frí í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.
Patriots var greinilega vel meðvitað um þetta enda yfirspilaði liðið New York Jets á öllum sviðum á sunnudag og vann leikinn örugglega, 38-3. Patriots mun því hvíla um helgina, rétt eins og Kansas City Chiefs sem gersigraði Oakland Raiders, 35-3.
Það var svo hreinn úrslitaleikur um sjötta sætið á milli Indianapolis Colts og Tennessee Titans en bæði lið kepppa í suðurriðli deildarinnar. Tennessee varð fyrir áfalli fyrir leik en aðalleikstjórnandi liðsins, Marcus Mariota, gat ekki spilað í leiknum vegna meiðsla.
Svo fór að Colts, með Andrew Luck fremstan í flokki, vann nokkuð þægilegan sigur, 33-17. Luck hefur verið frábær á seinni hluta tímabilsins og skyldi ekki afskrifa Colts í úrslitakeppninni, sérstaklega ef að Luck heldur uppteknum hætti.
Úrslitakeppnin

Báðum deildum er skipt í fjóra riðla og sigurvegari hvers riðils er öruggur með sæti í úrslitakeppninni. Liðunum fjórum er svo styrkleikaraðað samkvæmt árangri:
Ameríkudeildin:
1. Kansas City Chiefs (12 sigrar og 4 töp) - úr vesturriðli
2. New England Patriots (11-5) - úr norðurriðli
3. Houston Texans (11-5) - úr suðurriðli
4. Baltimore Ravens (10-6) - úr austurriðli
Þjóðadeildin:
1. New Orleans Saints (13-3) - úr suðurriðli
2. LA Rams (13-3) - úr vesturriðli
3. Chicago Bears (12-4) - úr norðurriðli
4. Dallas Cowboys (10-6) - úr austurriðli
Þá eru eftir fjögur sæti í úrslitakeppninni - tvö í Þjóðadeildinni og tvö í Ameríkudeildinni. Þessi sæti fá þau lið sem bestum árangri náði en unnu ekki sína riðla, svokölluð Wild Card-lið. Þessi lið eru ávallt sett í fimmta og sjötta sæti hvorrar deildar. Vitanlega er liðið með betri árangur ofar.
Eins og sjá má hér fyrir neðan vann Chargers alls tólf leiki og er ásamt Chiefs með besta árangur allra liða í Ameríkudeildinni. En þar sem Chiefs og Chargers eru saman í riðli og Chargers með lakari innbyrðisárangur í riðlinum sjálfum hafnaði Chargers í öðru sæti í vesturriðlinum og varð þar með annað tveggja Wild Card-liða Ameríkudeildarinnar.
Ameríkudeildin:
5. LA Chargers (12-4) - úr vesturriðli
6. Indianapolis Colts (10-6) - úr suðurriðli
Þjóðardeildin:
5. Seattle Seahawks (10-6) - úr vesturriðli
6. Philadelhia Eagles (9-7) - úr austurriðli
Keppnisfyrirkomulagið

Fram að því eru þrjár umferðir í úrslitakeppninni og fær það lið sem er ofar í styrkleikaröðuninni að spila á heimavelli.
1. umferð (Wild Card-helgin)
Eins og áður hefur komið fram munu efstu tvö liðin úr hvorri deild sitja hjá í fyrstu umferð riðlakeppninnar. Í fyrstu umferðinni, Wild Card-helginni, mætast hin liðin sem komust í úrslitakeppnina, átta talsins.
Í báðum deildum er fyrirkomulagið það sama - liðið sem hafnaði í þriðja sæti tekur á móti liðinu sem varð í sjötta sæti. Fjórða sætið leikur svo gegn fimmta sætinu.
2. umferð (Divisional Playoffs)
Fjögur lið komast því áfram í aðra umferð og mæta þá liðunum fjórum sem sátu hjá. Nú kemur styrkleikaröðunin aftur við sögu en í Ameríkudeildinni mun Chiefs ávallt mæta lægst skrifaða liðinu sem eftir stendur og hið sama á við um Saints í Þjóðadeildinni.
3. umferð (Conference Championships)
Í þriðju umferð eru svo aðeins tvö lið eftir í hvorri deild. Þau lið spila til úrslita í sinni deild þannig að eftir stendur Ameríkudeildarmeistari og Þjóðardeildarmeistari.
Næstu leikirFjórir leikir fara fram um helgina og verða allir sýndir í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Laugardagur:
Kl. 21:35 Houston Texans - Indianapolis Colts
Kl. 01:15 Dallas Cowboys - Seattle Seahawks
Sunnudagur:
Kl. 18:05 Baltimore Ravens - LA Chargers
Kl. 21:40 Chicago Bears - Philadelphia Eagles