Með áhyggjur af afskiptum Bannons Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 10. janúar 2019 06:30 Steve Bannon hefur hafið afskipti af Evrópuþingskosningunum. NORDICPHOTOS/AFP
Evrópusambandið vinnur nú að því að koma í veg fyrir dreifingu falsfrétta sem kunna að hafa áhrif á Evrópuþingskosningarnar í vor. Auka á samvinnu Evrópusambandsríkja í því skyni og auka samvinnu milli samfélagsmiðla þar sem falsfréttir geta fengið dreifingu. Samkvæmt frétt sænska ríkisútvarpsins hefur helsta ógnin hingað til stafað frá Rússlandi. Evrópumálaráðherra Svíþjóðar, Ann Linde, telur hins vegar einnig ástæðu til að óttast aðgerðir Steves Bannon, sem áður var einn nánasti ráðgjafi Trumps, en hann hefur hafið afskipti af kosningabaráttunni fyrir Evrópuþingskosningarnar. Hann hafi sýnt það í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum að hann hafi beitt aðferðum sem menn vilji helst ekki sjá, eins og til dæmis að nota Twitter og Facebook til að greina skoðanir einstaklinga og senda síðan út rangar upplýsingar. Bannon var áður aðstoðarframkvæmdastjóri greiningarfyrirtækisins Cambridge Analytica sem safnaði án leyfis persónuupplýsingum um margar milljónir notenda Facebook í því skyni að senda út pólitískan boðskap fyrir bandarísku kosningarnar 2016. Bannon er nú sagður vonast til að geta sameinað þjóðernisflokka í Evrópu og var hann nýlega í Brussel í því skyni.
Bandaríkin Birtist í Fréttablaðinu Evrópusambandið Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira