

Vanvirðing við vinnandi fólk
Hversu illa erum við stödd þegar þingmenn okkar hafa ekki tengsl eða skilning fyrir almenningi í landinu?
Ríkir hér svo mikil forréttindablinda og stéttarskipting að menn eru ófærir um að setja sig í spor annarra?
Hvaða málefni í okkar litla þjóðfélagi er mikilvægara en kjarasamningar fólksins sem hér býr og vinnur?
Þarf að skikka þingmenn til að taka amk. einn mánuð af sínu ofurlanga sumarfríi í að vinna láglaunastörf svo þau hafi skilning á þörfum kjósenda sinna?
Í starfi mínu hjá stéttarfélagi hitti ég mikið af fólki. Fólk sem vinnur baki brotnu við að halda uppi helstu stoðum samfélagsins, fólkið sem keyrir strætó, hugsar um eldri borgara okkar, börnin okkar, fólk sem framleiðir matinn okkar, eldar hann og ber hann fram, fólkið sem sinnir ferðamönnunum, þrífur eftir þá, þrífur eftir okkur, tekur ruslið okkar, lagar vegina okkar, sér um garðana, perurnar í ljósastaurunum og svo má lengi telja.
Fólkið sem er ómissandi til að daglegt líf okkar geti gengið smurt.
En allstaðar sem ég fer heyri ég sögur af viðmóti sem þetta fólk fær, skilningsleysið sem mætir því, vanvirðingin sem því er sýnt og það hryggir mig, ég er miður mín yfir óréttlætinu og skil ekki að á þau sé ekki hlustað, að kröfum þeirra sé ekki mætt.
Það er ekki nóg með að fólki sé boðið skítakaup sem enginn getur lifað af í nútímasamfélagi heldur þarf það að finna fyrir því daglega hvað það er lítils metið. Viðmót sem fólk í láglaunastörfum fær er ömurlegt og sérstaklega gagnvart fólki af erlendu bergi brotið. Því er sagt í hvert sinn og það biður um örlítið betri kjör að það eigi að vera þakklátt fyrir að vera yfir höfuð með vinnu. Vinnuveitendur hóta erlendu starfsfólki að það muni koma í veg fyrir að það fá vinnu annars staðar ef það reynir að berjast fyrir réttindum sínum, ef það leitar til stéttarfélagsins vegna þess að það er verið að brjóta á því getur það átt hættu á að missa starfið.
Rétt fyrir jólin hitti ég verkakonu hjá matvælafyrirtæki, hún hafði unnið þar í 35 ár við að framleiða vöru sem flestir telja ómissandi, sérstaklega fyrir jólin, en hún fékk uppsagnarbréf í jólagjöf. Orðin 65 ára gömul, átti einungis 2 ár eftir í ellilaun og stjórn fyrirtækisins taldi þau þurfa að hagræða svo að þau sögðu upp elstu starfsmönnunum sem hafa sýnt fyrirtækinu tryggð í gegnum súrt og sætt og það fyrir lágmarkslaun. Eftir 35 ár í starfi náði kaupið fyrir fulla vinnu einungis lágmarki sem er 300 þúsund krónur.
Tryggð fyrirtækis við starfsmenn er engin en tryggð starfsmanna er krafist.
Svigrúm kauphækkana er engin en aðaleigandi þessa fyrirtækis greiddi sjálfum sér 3,2 milljarða í arð á síðasta ári. Þúsundfalda launaupphæð konunnar sem var sagt upp.
Þegar ráðamenn eru spurðir hvort ekki þurfi að bæta kaup og kjör þessa fólks er svarið oft á þann veg að allir hafi jöfn tækifæri á Íslandi í dag, að allir geti sótt sér menntun og komið sér í önnur störf ef þau svo kjósa. Fyrir utan hvað það sýnir mikla vanþekkingu á raunveruleika vinnandi fólks þá gleyma þeir þeirri staðreynd að einhver þarf að vinna þessi störf, þau eru ómissandi í nútímasamfélagi og því ætti að sjá til þess að fólk sem tekur á sig að vinna þau fái mannsæmandi laun fyrir.
Það er kominn tími til að ráðamenn þessarar þjóðar taki forréttindahuluna frá augunum og standi með kjósendum sínum og beiti sér fyrir því að bæta kjör þeirra.
Ef þau gera það ekki þá efast ég að þau fái áframhaldandi vinnu á þingi eftir næstu kosningar, það eru jú jöfn tækifæri fyrir alla að bjóða sig fram til þings og margt gott fólk sem er til í að taka við keflinu.
Höfundur er starfsmaður Eflingar.
Skoðun

Vegið að íslenska lífeyriskerfinu
Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar

Ísland gjaldþrota vegna fatlaðs fólks?
Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar

Veiðigjöld, gaslýsingar og valdníðsla
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Sniðgangan á Rapyd slær öll met
Björn B. Björnsson skrifar

Pólitískt hugrekki og pólitískt hugleysi: ólík stefna tveggja systurflokka
Birgir Finnsson skrifar

Árið 2023 kemur aldrei aftur
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Trumpistar eru víða
Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Fasteignagjöld eru lág í Reykjavík
Sara Björg Sigurðardóttir skrifar

Gerræðisleg áform í anda Ráðstjórnarríkjanna
Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar

Opið svar til formanns Samleik- Útsvarsgreiðendur borga leikskólann í Kópavogi!
Rakel Ýr Isaksen skrifar

Nýbakaðir foreldrar og óbökuð loforð
Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar

Þegar bráðamóttakan drepur þig hraðar
Hólmfríður Ásta Hjaltadóttir skrifar

Samkeppnin tryggir hag neytenda
Hanna Katrín Friðriksson skrifar

Stóðhryssur ekki moldvörpur
Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar

Við getum gert betur
Einar Bárðarson skrifar

Tími til að notast við réttar tölur
Sigurjón Þórðarson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar

Hvernig hljómar 100.000 kr. mánaðarlegur samgöngustyrkur?
Valur Elli Valsson skrifar

Ábyrg stefna í útlendingamálum
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar

Týndu hermennirnir okkar
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Gerist þetta aftur á morgun?
Ísak Hilmarsson skrifar

Frá Írak til Gaza: Hvað höfum við lært af lygunum og stríðsbröltinu?
Helen Ólafsdóttir skrifar

Staða þorpshálfvita er laus til umsóknar
Jón Daníelsson skrifar

Að reikna veiðigjald af raunverulegum aflaverðmætum
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Fréttir af baggavélum og lömbum
Heiða Ingimarsdóttir skrifar

Auglýsingaskrum Landsvirkjunar
Stefán Georgsson skrifar

Öryggi og varnir Íslands
Kristrún Frostadóttir,Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,Inga Sæland skrifar

Takk Trump!
Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Fíllinn á teikniborði Landsvirkjunar
Soffía Sigurðardóttir skrifar

Tími til að staldra við
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Hvar er fyrirsjáanleikinn, forsætisráðherra?
Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar