Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar 29. október 2026 08:00 Það er fagnaðarefni að nú stendur yfir mesta uppbygging hjúkrunarrýma í sögu þjóðarinnar. Eftir áralanga stöðnun og aðgerðaleysi er loksins farið að sjá til lands með það markmið að fjöldi hjúkrunarrýma anni eftirspurn. Í ljósi þessa árangurs vekur furðu að nokkrir fulltrúar fyrrverandi ríkisstjórnar reyni nú að eigna sér heiðurinn af þessari þróun. En raunveruleikinn er sá að undir stjórn fyrri ríkisstjórnar var uppbygging hjúkrunarheimila í hnút. Sveitarfélögum var gert að bera 15 prósent af stofnkostnaði sem mörg þeirra gátu einfaldlega ekki staðið undir. Þetta leiddi til þess að fjöldi verkefna komst ekki lengra en á teikniborðið. Skýrasta dæmið um þetta aðgerðaleysi fyrri stjórnvalda var til að mynda staðan í Norðurþingi. Þar lágu framkvæmdir niðri og í fjögur ár blasti ekkert annað við en stór hola í jörðinni. Frá 2019 og út síðasta kjörtímabil fjölgaði hjúkrunarrýmum einungis um 69. Viðsnúningur í uppbyggingu Alger vendipunkturinn varð í þessum málum vorið 2025 eftir að núverandi ríkisstjórn tók við völdum. Með Ingu Sæland þáverandi félags- og húsnæðismálaráðherra í broddi fylkingar, tók ríkið alfarið á sig ábyrgð á fjármögnun hjúkrunarheimila og felldi niður 15 prósenta kröfu á sveitarfélögin. Eða eins og Inga orðaði það á sínum tíma: „Verkstjórn er tekin við sem hefur svo sannarlega spýtt í lófana.“ Hjólin fóru strax að snúast í upphafi síðasta árs. Skóflustunga var tekin að nýju heimili í Hveragerði, hafist var handa við breytingar á húsnæði við Nauthólsveg í Reykjavík og skrifað var undir samninga fyrir Þursaholt á Akureyri. Síðast en ekki síst var gengið frá samningum sem tryggðu að loksins var byrjað að byggja í fjögurra ára gamalli holu í Norðurþingi. Til að tryggja að framkvæmdir færu raunverulega af stað án tafa setti Inga Sæland á laggirnar stýrihóp um uppbyggingu hjúkrunarheimila. Það er flókið ferli að reisa og koma hjúkrunarheimili í rekstur og krefst náinnar samhæfingar milli ólíkra ráðuneyta, sveitarfélaga, framkvæmdaaðila og verðandi rekstraraðila. Ef ekki er tekið skipulega á stórum jafnt sem smáum úrlausnarefnum af festu getur framgangur uppbyggingar tafist í marga mánuði eða mörg ár eins og dæmin sanna. Stýrihópurinn hefur höggvið á hnúta, rutt flöskuhálsum úr vegi og tryggt að stjórnsýslan vinni með framkvæmdunum en ekki fyrir utan þær. Þannig hefur tekist að halda uppi ótrúlegum hraða í þessu mikla uppbyggingarstarfi. Árangurinn talar sínu máli Einungis rúmu hálfu ári eftir útgáfu nýrrar framkvæmdaáætlunar 2026–2030 eru 85 prósent af verkefnum áætlunarinnar nú þegar komin í ferli. Áætlunin gerir ráð fyrir 1.507 rýmum (þar af 1.355 nýjum rýmum), sem jafngildir 44 prósenta fjölgun hjúkrunarrýma á aðeins fimm árum. Nú þegar hafa yfir 200 ný og endurnýjuð rými verið tekin í notkun á þessu ári og um 500 rými eru á framkvæmdastigi. Vegna frumkvæðis ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir að biðlistum eftir almennum hjúkrunarrýmum verði eytt eins og kostur er í árslok 2030. Það er auðvelt að teikna upp áætlanir og lofa uppbyggingu til framtíðar. Það krefst hins vegar öruggrar forystu að ná fram nauðsynlegum lagabreytingum, semja við sveitarfélög og hefja raunverulegar byggingarframkvæmdir. Það er nákvæmlega það sem núverandi ríkisstjórn undir forystu Ingu Sæland hefur gert. Höfundur er þingmaður Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Íris Helga Gígju Baldursdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skoðun Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Sjá meira
Það er fagnaðarefni að nú stendur yfir mesta uppbygging hjúkrunarrýma í sögu þjóðarinnar. Eftir áralanga stöðnun og aðgerðaleysi er loksins farið að sjá til lands með það markmið að fjöldi hjúkrunarrýma anni eftirspurn. Í ljósi þessa árangurs vekur furðu að nokkrir fulltrúar fyrrverandi ríkisstjórnar reyni nú að eigna sér heiðurinn af þessari þróun. En raunveruleikinn er sá að undir stjórn fyrri ríkisstjórnar var uppbygging hjúkrunarheimila í hnút. Sveitarfélögum var gert að bera 15 prósent af stofnkostnaði sem mörg þeirra gátu einfaldlega ekki staðið undir. Þetta leiddi til þess að fjöldi verkefna komst ekki lengra en á teikniborðið. Skýrasta dæmið um þetta aðgerðaleysi fyrri stjórnvalda var til að mynda staðan í Norðurþingi. Þar lágu framkvæmdir niðri og í fjögur ár blasti ekkert annað við en stór hola í jörðinni. Frá 2019 og út síðasta kjörtímabil fjölgaði hjúkrunarrýmum einungis um 69. Viðsnúningur í uppbyggingu Alger vendipunkturinn varð í þessum málum vorið 2025 eftir að núverandi ríkisstjórn tók við völdum. Með Ingu Sæland þáverandi félags- og húsnæðismálaráðherra í broddi fylkingar, tók ríkið alfarið á sig ábyrgð á fjármögnun hjúkrunarheimila og felldi niður 15 prósenta kröfu á sveitarfélögin. Eða eins og Inga orðaði það á sínum tíma: „Verkstjórn er tekin við sem hefur svo sannarlega spýtt í lófana.“ Hjólin fóru strax að snúast í upphafi síðasta árs. Skóflustunga var tekin að nýju heimili í Hveragerði, hafist var handa við breytingar á húsnæði við Nauthólsveg í Reykjavík og skrifað var undir samninga fyrir Þursaholt á Akureyri. Síðast en ekki síst var gengið frá samningum sem tryggðu að loksins var byrjað að byggja í fjögurra ára gamalli holu í Norðurþingi. Til að tryggja að framkvæmdir færu raunverulega af stað án tafa setti Inga Sæland á laggirnar stýrihóp um uppbyggingu hjúkrunarheimila. Það er flókið ferli að reisa og koma hjúkrunarheimili í rekstur og krefst náinnar samhæfingar milli ólíkra ráðuneyta, sveitarfélaga, framkvæmdaaðila og verðandi rekstraraðila. Ef ekki er tekið skipulega á stórum jafnt sem smáum úrlausnarefnum af festu getur framgangur uppbyggingar tafist í marga mánuði eða mörg ár eins og dæmin sanna. Stýrihópurinn hefur höggvið á hnúta, rutt flöskuhálsum úr vegi og tryggt að stjórnsýslan vinni með framkvæmdunum en ekki fyrir utan þær. Þannig hefur tekist að halda uppi ótrúlegum hraða í þessu mikla uppbyggingarstarfi. Árangurinn talar sínu máli Einungis rúmu hálfu ári eftir útgáfu nýrrar framkvæmdaáætlunar 2026–2030 eru 85 prósent af verkefnum áætlunarinnar nú þegar komin í ferli. Áætlunin gerir ráð fyrir 1.507 rýmum (þar af 1.355 nýjum rýmum), sem jafngildir 44 prósenta fjölgun hjúkrunarrýma á aðeins fimm árum. Nú þegar hafa yfir 200 ný og endurnýjuð rými verið tekin í notkun á þessu ári og um 500 rými eru á framkvæmdastigi. Vegna frumkvæðis ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir að biðlistum eftir almennum hjúkrunarrýmum verði eytt eins og kostur er í árslok 2030. Það er auðvelt að teikna upp áætlanir og lofa uppbyggingu til framtíðar. Það krefst hins vegar öruggrar forystu að ná fram nauðsynlegum lagabreytingum, semja við sveitarfélög og hefja raunverulegar byggingarframkvæmdir. Það er nákvæmlega það sem núverandi ríkisstjórn undir forystu Ingu Sæland hefur gert. Höfundur er þingmaður Flokks fólksins.
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun